Á aukafundi borgarstjórnar í gær var samþykkt að hefja innkaupaferli vegna hönnunar við nýjan skóla í Vogabyggð, Skólabrú-Fleyvang. Heimildin var samþykkt með 12 atkvæðum meirihlutaflokkanna gegn sex atkvæðum Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Kostnaðaráætlun byggingarinnar nemur nú 14.865 milljónum króna. Efri vikmörk nema 19.300 milljónum króna en neðri vikmörk 13.400 milljónum. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir að byggingarframkvæmdirnar verði væntanlega fjármagnaðar með dýrum lánum, sem velt verði yfir á næstu kynslóð. Hann segir flokkinn telja óeðlilegt að samþykkja svo stórt og dýrt verkefni í snarhasti á sérstökum aukafundi borgarstjórnar örfáum dögum fyrir kosningar. „Miðað við fyrirliggjandi gögn mun byggingin Fleyvangur – Skólabrú einkennast af framúrstefnulegum íburði og bruðli. Húsið verður augljóslega afar dýrt í byggingu og rekstri og margt bendir til að það sé uppskrift að kostnaðarlegu stórslysi, m.a. vegna legu og lögunar hússins,“ segir Kjartan. „Sú spurning vaknar hvort stjórnendur borgarinnar hafi ekkert lært af kostnaðarsömum mistökum, sem gerð hafa verið í byggingarmálum borgarinnar á undanförnum árum, ekki síst á sviði skólamála. Bruðlinu virðist ekki ætla að linna miðað við verkefni sem eru á teikniborðinu. Mörg dæmi sýna þó að hægt sé að reisa glæsilegar og metnaðarfullar skólabyggingar án þess að kostnaður fari úr böndunum. Verðlaunasamkeppni virðist oft hafa þær afleiðingar í för með sér að kostnaður opinberra bygginga hleypur upp úr öllu valdi. Oft virðast arkitektar líta á slík verkefni sem tækifæri til að reisa sjálfum sér framúrstefnulegt minnismerki. Hagkvæmni og notagildi virðist þá ekki skipta máli, hvorki byggingarkostnaður viðkomandi húss, né rekstrarkostnaður þess til framtíðar." Í vinningstillögunni hugmyndasamkeppninnar er skólinn byggður sem brú, alveg upp að Vörputorgi og er garður á þaki hans útivistarsvæði hverfisins, í framhaldi af torginu. © Aðsend mynd (AÐSEND) Í bókun meirihlutans á fundi borgarráðs í síðustu viku þar sem ráðið samþykkti að hefja umrætt innkaupferli segir að hönnun skólans hafi verið niðurstaða stórrar hönnunarsamkeppni sem kynnt var í apríl 2024. Nú sé veitt samþykki fyrir hönnunarferli sem muni taka þrjú ár og síðan taki við sex ára framkvæmdatími. Kostnaður verkefnisins muni því dreifast á 9-10 ár ef að líkum lætur. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem greiddu atkvæði gegn tillögunni sögðu í bókun að þó hönnunin sé glæsileg sé um að ræða eitt stærsta og flóknasta uppbyggingarverkefni borgarinnar á síðari árum. Óábyrgt sé af fráfarandi meirihluti að ýta verkefni af þessari stærðargráðu af stað á þessum tímapunkti.