Innlent | Morgunblaðið | 14.2.2026 | 7:00 Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Björn Gíslason Ljósmynd/Sjálfstæðisflokkurinn Aðsend grein úr Morgunblaðinu: Í grein sem ég ritaði nýverið í Morgunblaðið undir yfirskriftinni „Hættuleg þrenging að umferð við Höfðabakka“ fjallaði ég um alvarlegar afleiðingar þeirra breytinga við Höfðabakka og Bæjarháls sem þá voru fyrirhugaðar en hafa nú orðið að veruleika. Þar benti ég á að með því að fjarlægja beygjuvasa og þrengja að umferð væri verið að skapa tafir, auka slysahættu og tefja neyðarakstur – allt í nafni öryggis sem þegar var tryggt með öðrum úrræðum. Sú þróun sem varað var við hefur því miður raungerst. Umferð um Höfðabakka verri en áður Eftir umfangsmiklar framkvæmdir við Höfðabakka, meðal annars við Bæjarháls, Dvergshöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú, er umferð á svæðinu nú þyngri en áður. Bílar raðast eftir öllum Höfðabakkanum, oft langt inn í Grafarvog og niður Ártúnsbrekku og umferð hefur í auknum mæli leitað inn í íbúðahverfi þegar ökumenn reyna að komast hjá teppum á stofnæðinni. Þrátt fyrir að umferðaröryggi og skilvirkni eigi að vera leiðarljós slíkra framkvæmda hefur hvorugt batnað. Þvert á móti er niðurstaðan verri en áður. Íbúasamtök Grafarvogs hafa sent borgarfulltrúum formlega áskorun um endurskoðun breytinganna, án þess að svör hafi borist. Það er ekki boðlegt. Borgin vissi af afleiðingunum Komið hefur fram að borgaryfirvöld vissu fyrir fram að við það að fjarlægja beygjuvasana myndu tafir aukast í umferð. Greining sem unnin var fyrir borgina sýndi jafnframt að biðtími á háannatíma gæti farið úr um níu sekúndum í allt að 92 sekúndur. Sú greining var hins vegar ekki lögð fram eða kynnt borgarfulltrúum og almenningi við ákvörðunartökur. Jafnframt liggur fyrir að engin slys á gangandi eða hjólandi vegfarendum hafa orðið í þeim beygjuvösum sem fjarlægðir voru, þrátt fyrir áratugalanga notkun. Það dregur verulega í efa þau rök sem breytingarnar voru byggðar á. Tillaga Sjálfstæðisflokksins liggur nú fyrir Af þessum sökum mun Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn leggja fram formlega tillögu um heildstæða endurskoðun á umferðarskipulagi við Höfðabakka, þar á meðal við Bæjarháls, Dvergshöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú. Tillagan miðar að því að draga til baka þær breytingar sem hafa reynst skaðlegar, meta raunveruleg áhrif þeirra aðgerða sem þegar hefur verið ráðist í og leita lausna sem bæta bæði umferðarflæði og öryggi. Hver sekúnda skiptir máli Í tillögunni er sérstök áhersla lögð á áhrif á neyðarakstur. Ég tala þar af reynslu sem fyrrverandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður þegar ég segi að hver sekúnda skiptir máli þegar á reynir. Ákvarðanir sem auka líkur á töfum við slíkar aðstæður eru einfaldlega ekki ásættanlegar. Sjálfstæðisflokkurinn telur að markmiðum um aukið öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda verði náð með uppfærðri og snjallari ljósastýringu og nýtingu rauntímagagna, án þess að fórna þeim beygjuvösum sem í áraraðir hafa tryggt gott umferðarflæði. Tími til að staldra við Höfðabakki er ein af lykiltengingum borgarinnar. Allar breytingar á slíkum stofnæðum verða að byggjast á faglegum gögnum, heildarsýn og raunverulegu mati á afleiðingum. Þegar niðurstaðan er verri en áður ber að staldra við, hlusta á íbúa og leiðrétta kúrsinn. Tillaga Sjálfstæðisflokksins liggur nú fyrir borgarstjórn. Nú reynir á hvort borgaryfirvöld eru reiðubúin að axla ábyrgð og laga það sem augljóslega þarf að laga. Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Legurými staðið til boða í mánuði Setja um 200.000 íslenskar rósir á markað í febrúar Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Berklar „morðenglar mannkyns“ Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið Kjartan á leiðinni til Íslands Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Kjaradeilu FVFÍ vísað til ríkissáttasemjara 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Nágrannar hyggjast kæra Legurými staðið til boða í mánuði Setja um 200.000 íslenskar rósir á markað í febrúar Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Berklar „morðenglar mannkyns“ Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Björgunarsveitir kallaðar út á Snæfellsnesi Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið Kjartan á leiðinni til Íslands Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Kjaradeilu FVFÍ vísað til ríkissáttasemjara 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Nágrannar hyggjast kæra