Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hátt olíuverð tekur hressilega í hjá útgerðinni

  • What: Rising oil prices impact local business
  • Impact: Not related to cybersecurity
Read Full Article →

Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, segir mikla hækkun á olíuverði óneitanlega hafa umtalsverð áhrif á rekstur félagsins. „Það er alveg klárt mál, sérstaklega í svona orkufrekum veiðum eins og kolmunna þar sem olíuverðið fyrir var nú hátt hlutfall af verðmætum veiðanna, að það tekur hressilega í núna,“ segir Garðar. Geti ekki fleytt hækkunum út í markaðinn Aðspurður segir Garðar ekki hægt að koma þessum viðbótarkostnaði yfir á kaupendur afurðanna, sem eru mjöl og lýsi. „Það er bara heimsmarkaðsverð sem gildir. Það er sem betur fer ágætis staða þar markaðslega en við getum ekkert fleytt þessum verðhækkunum út í markaðinn,“ segir hann. Sextíu prósenta hækkun Olíuverðið hefur hækkað allhressilega á örfáum mánuðum eftir að Bandaríkin hófu árásir á Íran með tilheyrandi lokunum á hinni mikilvægu siglingaleið olíuútflutningsríkja um Hormússund. „Ef við tökum dæmi hefur olían á uppsjávarskipunum hækkað um 60 prósent frá því í febrúar fram í maí,“ segir Garðar. Þetta taki vel í, ekki síst þegar siglt sé langt eins og til kolmunnaveiða í færeysku lögsögunni. Markaðurinn hjálpar eitthvað til „Skipin fara með gríðarlegt magn af olíu á hverjum sólarhring og það fer því mikil olía í þessar veiðar. Þannig að þetta er dýrt, það er ekkert hægt að neita því,“ segir Garðar. Menn hafi þó haldið sínu striki við veiðarnar. „Eins og ég sagði hefur markaðurinn kannski að einhverju leyti hjálpað okkur með því að vera þokkalega sterkur í augnablikinu þannig að þetta hefur ekki orðið til þess að menn sjái ástæðu til að sleppa veiðunum. En menn þurfa að vanda sig að gera hlutina á eins hagkvæman hátt og hægt er. Og mögulega eru einhverjir sem ákveða að bíða með veiðarnar fram á haustið og sjá hvort ástandið verði eitthvað búið að lagast þá,“ segir Garðar. Kolefnisgjaldið tvöfaldast Þá hjálpar ekki að sögn Garðars hversu mikið kolefnisgjaldið hafi hækkað á stuttum tíma. „Í desember 2024 vorum með kolefnisgjöld á olíunni upp á 13,45 krónur á lítrann en þau eru 28,3 krónur í dag. Það hækkar á tveimur árum um sirka 110 prósent,“ bendir hann á. Í dæmigerðum kolmunnatúr til Færeyja sé ekki óeðlilegt að olíunotkunin sé um 140 þúsund lítrar. Það munar því um minna. Ætlar ekki að spá Um hver þróunin á olíuverði kunni að verða segir Garðar enga leið að sjá hana fyrir. „Maður er löngu búinn að gefast upp á því að spá því hvað gerist í þessum málum. Við þurfum bara að vera á tánum og laga okkur að því sem kemur upp,“ segir hann. Nú þegar kolmunnaveiði vorsins er að líða undir lok hægist dálítið um hjá Loðnuvinnslunni í bili. „Ég hugsa að við tökum restina af kolmunnanum í haust. Nú er áherslan á bolfiskveiðar og vinnslu næstu mánuði. Ég reikna ekki með því að við förum á neinar uppsjávarveiðar fyrr en makríllinn byrjar í lok ágúst og svo er það síldin í haust,“ segir Garðar Svavarsson.

Share this article