Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.2.2026 | 8:00 Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Ólafur Guðmundsson og Kristinn Sv. Helgason Samgöngumálin verða án efa eitt af stóru málunum í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Samgöngukerfi borgarinnar ræður ekki lengur við núverandi umferðarmagn, og miklar tafir, sérstaklega á álagstíma, valda íbúum og fyrirtækjum háum kostnaði og óþægindum. Þetta er að stórum hluta heimatilbúinn vandi þar sem borgaryfirvöld hafa verulega vanrækt síðustu tvo áratugi nauðsynlegar framkvæmdir til að auka umferðarflæði. Á sama tíma gerir hið háa skatta-, útgjalda- og skuldsetningarstig borgarinnar það að verkum að það er óskynsamlegt að leggja út í fjármagnsfrekar og rekstrarlega áhættusamar samgönguframkvæmdir eins og borgarlínuna. Áætluð fjárfesting í borgarlínunni til ársins 2040 er um 136 ma. kr. sem eru 42% af 324 ma. kr. heildarkostnaði samgönguáætlunar höfuðborgarsvæðisins. Í lok síðasta árs var búið að fjárfesta 6,1 ma. kr. í borgarlínunni eða um 4,5% af áætluðum heildarkostnaði. Samkvæmt uppfærðri rekstraráætlun fyrir borgarlínuna í febrúar 2024 munu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkið einnig þurfa að leggja til þessa verkefnis um 11 ma. kr. rekstrarframlag árlega að meðaltali á tímabilinu 2025 til 2040. Það sem greinir borgarlínuna frá öðrum valkostum í samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins er ekki einungis stærð þessa fjárfestingarverkefnis heldur líka hið háa árlega rekstrarframlag sem eigendur munu þurfa að leggja fram. Stjórnendur Reykjavíkur þurfa því að spyrja sig eftir kosningar í vor hvort hægt sé að réttlæta fjárfestingu af slíkri stærðargráðu, sérstaklega í ljósi þess að fjárhagsstaða borgarinnar er komin að þolmörkum og aðrir hagkvæmari samgöngukostir bjóðast sem eru bæði arðsamari og áhættuminni. Fyrir tveimur árum var framkvæmd félagshagfræðileg kostnaðar- og ábatagreining á samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins, þ.m.t. borgarlínunni. Samkvæmt þessari greiningu er gert ráð fyrir því að á árinu 2040 hafi kílómetrafjöldi almenningssamgangna vaxið um 36%; daglegur fjöldi þeirra sem noti nýja strætókerfið aukist um 45% eða 30 þúsund einstaklingar; ferðir á einkabílum dregist saman um 6%; og 33% færri klukkustundum verið eytt í umferðartafir. Þessi greining áætlar að borgarlínan skili 9% innri arðsemi miðað við 50 ára fjárfestingartíma sem að langmestu leyti skýrist af styttri ferða- og biðtíma farþega strætó og einkabíla í umferðinni. Um 37% af heildartímasparnaði vegna verkefna samgönguáætlunar og Sundabrautar eru tilreiknuð borgarlínunni vegna meiri skilvirkni samgangna og minni umferðartafa. Til samanburðar er gert ráð fyrir því að aðrar vegaframkvæmdir í samgönguáætluninni, eins og fyrirhuguð göng og stokkur á Miklubraut og Sæbraut sem og breikkanir og undirgöng á ýmsum mikilvægum stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu, muni leiða til 47% tímasparnaðar í umferðinni á árinu 2040. Þessar framkvæmdir á stofnvegum eru hins vegar rekstrarlega áhættulitlar í samanburði við borgarlínuna. Það má líka færa fyrir því sterk rök að núverandi áætlanir um borgarlínu séu byggðar á of mikilli bjartsýni um líklega eftirspurn eftir strætóþjónustu hennar við þau veðurskilyrði sem hér ríkja. Í ljósi hás útgjalda- og skuldsetningarstigs Reykjavíkur er því full ástæða til fyrir nýjan meirihluta í borginni í kjölfar komandi kosninga að láta fara fram nýja endurskoðun á samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins samhliða því að hætta við borgarlínuna en auka þess í stað fjárfestingar í öðrum rekstrarlega arðsamari og fjárhagslega áhættuminni samgönguverkefnum á vegum þessa samstarfs. Slík endurskoðun þarf líka að tryggja að samgöngusáttmálinn endurspegli nýjar forsendur í skipulags-, fjár- og umhverfismálum sveitarfélaga, innviðaáætlun stjórnvalda sem og nýjar áherslur í vegagerð sem byggjast á skýrari stefnu hvað varðar staðla, viðmiðanir og öryggiskröfur. Samhliða endurskoðun á samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins og því að hætta við borgarlínuna getur nýr meirihluti í Reykjavík unnið markvisst að því að styrkja samgöngukerfi borgarinnar sjálfrar til lengri tíma með skynsamlegum fjárfestingum á eftirfarandi sviðum: snjallstýringu umferðarflæðis; frekari uppbyggingu mislægra gatnamóta; fleiri göngum og stokkum þegar það er hagkvæmt; öflugri og skilvirkari almenningssamgöngum og viðameira neti göngu- og hjólastíga. Nýir pólitískir stjórnendur Reykjavíkurborgar eftir kosningarnar í vor þurfa líka að hraða rannsóknum og annarri undirbúningsvinnu vegna Sundabrautar með það að markmiði að tryggja að mannvirki af þessari stærðargráðu verði byggt í sátt og samlyndi við íbúa nærliggjandi hverfa sem og umhverfið og að þessi framkvæmd sé fjárhagslega arðsöm fyrir samfélagið í heild. Í hnotskurn má segja að Reykjavík standi nú á tímamótum í samgöngumálum og það er mikilvægt að nýr meirihluti í borgarstjórn móti skýra stefnu um að allar framkvæmdir standist háar rekstrarlegrar arðsemiskröfur og séu ekki fjárhagslega áhættusamar, sérstaklega á tímum þegar mikil þörf er á að auka aðhald í rekstri og lækka langtímaskuldir borgarinnar. Ólafur Guðmundsson, sérfræðingur í samgöngumálum og fyrrverandi varaborgarfulltrúi í Reykjavík. Kristinn Sv. Helgason, sérfræðingur í opinberri stefnumótun með doktorsgráðu auk meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og rekstrarhagfræði. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Grænland í hjarta á Valentínusardagskorti Hvíta hússins Drónar notaðir sem leitartæki í veiði „Þetta er bara eins og að vera í eilífðarsumarfríi“ Óábyrgt plan Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Bústaðurinn brann til kaldra kola Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Legurými staðið til boða í mánuði 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Nágrannar hyggjast kæra Grænland í hjarta á Valentínusardagskorti Hvíta hússins Drónar notaðir sem leitartæki í veiði „Þetta er bara eins og að vera í eilífðarsumarfríi“ Óábyrgt plan Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Framsókn kýs nýjan formann Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Legurými staðið til boða í mánuði 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Nágrannar hyggjast kæra

Share this article