- What: A new finance manager has joined the Icelandic Gas Company
- Impact: Leadership change in the company's finance department
Íshildur Agla Lingþórsdóttir hefur tekið við stöðu aðstoðarfjármálastjóra hjá Íslenska gámafélaginu. Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2014 þegar hún hóf störf sem sumarstarfsmaður í flokkun á endurvinnsluhráefni. Síðan þá hefur hún gegnt fjölbreyttum hlutverkum innan félagsins, meðal annars á þjónustusviði og í reikningagerð, auk þess sem hún hefur síðustu ár starfað sem sérfræðingur á útflutnings- og hráefnasviði. Í þessum störfum hefur hún öðlast mikla þekkingu á rekstri félagsins og byggt upp sterkan grunn í fjármálum, ferlum og samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila. Í nýju starfi mun Íshildur m.a. koma að rekstri og þróun fjármálasviðs, stýra umbótum á ferlum og verklagi og veita stuðning við áframhaldandi vöxt og þróun félagsins. Sjá einnig Andri Þór ráðinn sölustjóri Íslenska gámafélagsins Íshildur er með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu. „Ég er afar spennt fyrir þessu nýja hlutverki og þeim tækifærum sem það felur í sér. Íslenska gámafélagið er að ganga í gegnum spennandi tíma og það er hvetjandi að fá að taka þátt í þeirri uppbyggingu og þróun sem fram undan er. Ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir með frábæru samstarfsfólki,“ segir Íshildur Agla.