Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þrjú ný í eigendahóp Pálsson

  • What: Three new members join the ownership group of Pálsson
  • Impact: Leadership changes and expansion of the company's management team
Read Full Article →

Pálsson ehf. hefur fengið þau Hrafnhildi Láru Ragnarsdóttur, Hjörleif Þórðarson og Tandra Má Konráðsson inn í eigendahóp félagsins. Öll hafa þau starfað hjá félaginu um árabil og gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun starfseminnar á þeim tíma. Með inngöngu þeirra í eigendahópinn er stigið skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og styrkingu stjórnenda- og ráðgjafarteymis þess samhliða áframhaldandi vexti félagsins. Hrafnhildur Lára hefur starfað hjá Pálsson frá árinu 2017 og leiðir í dag endurskoðunarsvið félagsins. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði endurskoðunar, reikningsskila og fjármálaráðgjafar og hefur komið að þjónustu við fjölbreytt fyrirtæki og rekstrareiningar. Hún lauk meistaragráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá Háskóla Íslands árið 2016. Hjörleifur hóf störf hjá Pálsson í lok árs 2020 og er í dag sviðsstjóri bókhalds- og uppgjörssviðs félagsins. Hann hefur yfirgripsmikla reynslu af rekstrarráðgjöf, stefnumótun og þjónustu við fyrirtæki af ólíkri stærð og gerð. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í þróun og uppbyggingu þjónustu félagsins á síðustu árum og hefur lokið meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2019. Tandri Már hóf störf hjá Pálsson í upphafi árs 2021 og gegnir í dag stöðu sviðsstjóra bókhalds- og uppgjörssviðs félagsins. Hann hefur sérhæft sig í uppgjörsvinnu, reikningshaldi og daglegri fjármálastjórnun fyrirtækja. Á undanförnum árum hefur Tandri tekið virkan þátt í þróun og uppbyggingu bókhalds- og uppgjörssviðs félagsins og komið að innleiðingu og mótun verkferla sem hafa stutt við áframhaldandi vöxt og aukna þjónustu félagsins. Tandri lauk B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2017. „Koma Hrafnhildar, Hjörleifs og Tandra inn í eigendahóp félagsins markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Pálsson ehf. Þau búa öll yfir mikilli reynslu, sterkri sýn og verðmætri þekkingu sem mun styrkja félagið til framtíðar,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Share this article