Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Samkomulag um viðskiptakjör við Bandaríkin í höfn

  • What: Political agreement on trade terms between US and EU
  • Impact: No direct security impact
Read Full Article →

Samningamenn Evrópuþingsins og ráðherraráðs Evrópusambandsins náðu í nótt samkomulagi um innleiðingu Turnberry-samningsins svokallaða um viðskiptakjör milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Samingurinn var handsalaður í júlí í fyrra á fundi þeirra Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Donalds Trump Bandaríkjaforseta, en tafir hafa orðið á innleiðingu hans; innan aðildarríkjanna var víða óánægja með að Evrópusambandið hefði fallist á flatan fimmtán prósenta toll á langflestar vörur frá aðildarríkjunum. Framferði Bandaríkjastjórnar, til dæmis hvað varðar Grænland og Danmörku, varð einnig til þess að tefja framgang þessa máls á Evrópuþinginu. Töfin varð að lokum til þess að fyrr í þessum mánuði hótaði Trump tollahækkunum, meðal annars á evrópskar bifreiðar, yrði ekki gengið frá þessum samningi fyrir byrjun júlí. Nokkrir varnaglar hafa verið settir inn í samninginn, meðal annars um að Bandaríkin þurfi að lækka tolla á stálvörum frá Evrópusambandinu fyrir lok þessa árs, og að Evrópusambandið geti metið hvort innflutningur frá Bandaríkjunum hafi skaðleg áhrif á iðnaðargeira heimafyrir í aðildarríkjunum. Hins vegar var hætt við að hafa í samningnum ákvæði um að hann skyldi falla úr gildi, ef Bandaríkin ógnuðu á einhvern hátt fullveldi aðildarríkja ESB.

Share this article