- What: Landsbankinn becomes a shareholder in Qivalis, a stablecoin project
- Impact: European financial institutions collaborate on a regulated digital euro solution
Landsbankinn hefur gerst hluthafi í Qivalis, félags í eigu 37 fjármálafyrirtækja frá 15 Evrópulöndum, og tekur þannig þátt í að þróa stöðugleikamynt í evru fyrir evrópskan fjármálamarkað. Landsbankinn gerist hluthafi með þátttöku í hlutafjáraukningu félagsins. Hluthafar eiga allir jafnan hlut. Landsbankinn segir samstarfið auka slagkraft evrópskra fjármálafyrirtækja í útgáfu sýndareigna í evrum. Meðal annarra þátttakenda í samstarfinu eru ABN AMRO, BBVA, BNP Paribas, Nordea, Rabobank, SEB, Swedbank, Danske Bank og UniCredit. Í tilkynningu á vef Landsbankans segir að markmið verkefnisins sé að byggja upp örugga, evrópska innviði fyrir stafrænar greiðslur og uppgjör sem samræmast regluverki Evrópusambandsins, þar á meðal MiCA-regluverkinu um markaði fyrir sýndareignir. Qivalis var stofnað árið 2025 og hefur aðsetur í Amsterdam. Verkefnið er nú í leyfisferli hjá hollenska seðlabankanum og er stefnt að því að lausnin verði tilbúin á síðari hluta árs 2026. Stöðugleikamyntin mun lúta eftirliti hollenska seðlabankans. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir að með þátttöku sinni verði bankinn hluti af víðtæku samstarfi leiðandi evrópskra banka sem miði að því að þróa framtíðarinnviði fjármálakerfisins með áherslu á öryggi, gagnsæi og skilvirkni í stafrænum greiðslum. „Það er mikilvægt fyrir Landsbankann að móta og nýta þær tækninýjungar sem við teljum að geti einfaldað viðskiptavinum lífið.“ Stöðugleikamynt eða fastgengismynt er sýndareign í formi rafeyris sem er bundinn við gengi hefðbundinnar myntar. „Lausnin sem Qivalis vinnur að verður að fullu studd með varasjóðstryggingu á móti hverri útgefinni sýndareiningu. Ein stafræn evra mun jafngilda einni evru.“