- What: Bridge maintenance on Jökulsá in Fjallabakki
- Impact: Road closures affect transportation
Unnið verður að viðhaldi við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum 26. maí til 16. júní. Brúin er hluti af hringveginum og lokanir á henni hafa töluverð áhrif á ferðaþjónustu. Til stendur að mála brúna, það er framhald viðhaldsvinnu frá því í fyrrasumar. Þá var brúin lokuð í tvær vikur. Gunnar M. Guðmundsson, forstjóri Sérleyfisbíla Akureyrar, segist skilja að sinna þurfi viðhaldi á vegum og brúm landsins en það sé hægt að gera hlutina betur: „Það sem ég gagnrýni mest er hvað er stuttur fyrirvari á þessu og það sé ekki hægt að vinna þetta hraðar. Hrúga fleiri mönnum í þetta og gera þetta á styttri tíma. Það eru náttúrulega bílar á fullu í ferðum hringinn í kringum landið,“ segir Gunnar M Guðmundsson, forstjóri SBA. Verkið unnið eins hratt og mögulegt er G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir nauðsynlegt að sinna þessu viðhaldi og að komið sé til móts við ferðaþjónustuna með því að hafa fjóra glugga yfir daginn þar sem akstur er leyfður. Það tefji verkhraðann. Verkið sé unnið eins hratt og hægt er. Fyrsta fréttatilkynning um væntanlegt viðhald hafi verið send út 7. maí og uppfærð 18. maí. „Það þarf að halda þessari brú við eins og öllum öðrum þannig það er erfitt við það að eiga,“ segir G. Pétur Matthíasson Um er að ræða tímabundna lokun á meðan á viðhaldi stendur. Brúin verður opin eftir klukkan 19:00 á daginn og fram til morguns. Einnig verður brúin opin um helgar.