Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjárfestu fyrir 2,5 milljarða

  • What: Discussion on tax increases and investments
  • Impact: Icelandic fishing industry
Read Full Article →

Í ársskýrslu Loðnuvinnslunnar er vikið að átökunum í kringum hækkun veiðigjalda og annarra skatta eins og kolefnisskatts. „Lítið gekk að snúa ofan af þeim áformum og hækkuðu þessir skattar verulega. Veiðigjöldin hafa ekki enn hækkað að fullu og veruleg óvissa er um hver þau verða á næstu misserum.“ Eitt sé þó ljóst, að gjöldin sjálf og óvissan í kringum þau muni hafa veruleg áhrif á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja og draga úr hvata til fjárfestinga, uppbyggingar og frekari verðmætasköpunar. „Það hvílir mikil ábyrgð á stjórnvöldum að vanda til verka og draga ekki þróttinn úr atvinnulífinu og mikilvægri verðmætasköpun fyrir samfélagið allt.“ Loðnuvinnslan fjárfesti í rekstrartækjum og búnaði fyrir tvo og hálfan milljarð króna á síðasta ári. Í ársskýrslunni er tekið fram að fjárfestingar síðustu ára í framleiðslutækjum og aflaheimildum hafi styrkt félagið verulega og þrátt fyrir óvissu muni það halda áfram að ráðast í skynsamlegar fjárfestingar. Á haustmánuðum gekk Loðnuvinnslan frá samkomulagi við Ós ehf. um kaup á togaranum Þórunni Sveinsdóttur. Skipið mun fá nafnið Ljósafell SU-70 og leysa þar af hólmi afar farsælan togara með sama nafni sem hefur þjónað Loðnuvinnslunni og forverum frá upphafi. Á árinu gekk félagið einnig frá kaupum á Ebba-útgerð og með félaginu fylgdi báturinn Ebbi AK-37. Helstu aflaheimildir félagsins voru rúm 80 tonn af þorski og 80 tonn af ýsu. Báturinn var seldur til útgerðarfélags í Grímsey án aflaheimilda. Í lok árs seldi Loðnuvinnslan krókaaflamarksbátinn Sandfell SU-75 til Ebba-útgerðar og var um leið fallið frá fyrri áformum um að sameina rekstur Sandfells inn í Loðnuvinnsluna. Þar að auki keypti Loðnuvinnslan útgerðarfélagið Litla Tind ehf. ásamt aflaheimildum og bátnum Litla Tind SU508. Helstu aflaheimildir félagsins voru tæp 39 tonn af þorski. Gengið hefur verið frá sölu bátsins Litla Tinds á þessu ári og var hann seldur án aflaheimilda. Helstu fjárfestingar í landi voru í nýju húsi til flokkunar og flökunar auk þess sem unnið var að nýjum mjöldragara. Þessum fjárfestingum mun ljúka á þessu ári en þá verða síldarflökunarvélar færðar úr Salthúsinu í nýtt húsnæði. Þannig mun nokkuð hagræði myndast með nýju húsnæði auk þess sem hægt verður að landa samtímis kolmunna til bræðslu og loðnu til frystingar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article