Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hótar að hætta við ris­a­f­ram­kvæmd ef skattar hækka

  • What: JPMorgan warns of potential investment changes due to UK tax policies
  • Impact: Financial sector faces uncertainty over future investments in the UK
Read Full Article →

Jamie Dimon, bankastjóri JPMorgan Chase, varaði bresk stjórnvöld við að ef sértækir skattar á banka verði hækkaðir, komi til þess að Keir Starmer yrði skipt út sem forsætisráðherra, myndi bankasamstæðan falla frá áformum um að fjárfesta í nýjum höfuðstöðvum í London fyrir milljarða dala. Tugir þingmanna Verkamannaflokksins og nokkrir ráðherrar hafa kallað eftir afsögn Starmer vegna slæms gengis flokksins í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Í viðtali við Bloomberg var Dimon spurður hvort JPMorgan myndi endurskoða áform um risaframkvæmdir í Canary Wharf hverfinu í ljósi pólitískrar óvissu í Bretlandi. Sjá einnig Byggja langstærstu skrif­stofu­bygginguna í London Hann sagði að pólitísk óvissa sem slík myndi ekki hafa bein áhrif á áformin en ef stjórnvöld yrðu fjandsamleg gagnvart bönkum á ný þá gæti það spilað inn í ákvörðunina. „Ég hef alltaf mótmælt því að við höfum skaðað Bretland á nokkurn hátt. Við höfum sennilega greitt um 10 milljarða dala í viðbótarskatta fram til þessa. Mér finnst það hvorki rétt né sanngjarnt. Ef þetta gengur of langt munum við taka þetta til endurskoðunar.“ JPMorgan Chase, stærsti banki Bandaríkjanna, tilkynnti í nóvember sl. um að hann hyggist reisa stærstu skrifstofublokk Lundúna í Canary Wharf fjármálahverfinu. Bankinn sagðist gera ráð fyrir að heildarfjárfesting í breska hagkerfinu vegna framkvæmdarinnar verði um 9,9 milljarðar punda og áætlað er að um 12 þúsund manns muni starfa í byggingunni. Dimon hefur áður hrósað bæði Starmer og Rachel Reeves, fjármálaráðherra Bretlands. Hann sagði í gær að Starmer væri „klár maður“. Í umfjöllun Bloomberg segir að skuldabréfamarkaðir hafa brugðist harkalega við mögulegri afsögn Starmer vegna ótta um að eftirmaður hans gæti fært ríkisstjórnina lengra til vinstri með hærri sköttum og auknum ríkisútgjöldum.

Share this article