Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sér hliðstæður við aðstæður í kringum hrunið

Read Full Article →

Forstjóri JPMorgan Chase, Jamie Dimon, segist vera farinn að sjá hliðstæður tímabilsins í aðdraganda fjármálahrunsins árið 2008, að því leyti að ýmsir lánveitendur gangi langt til að stækka lánabækur sínar. „Því miður - við sáum við þetta á árunum 2005, 2006 og 2007, nánast það sama – aðfall sem lyfti öllum bátum og allir voru að græða mikið,“ sagði Dimon við fjárfesta í gær, spurður um harða samkeppni í fjármálageiranum. Þótt JPMorgan sé ekki tilbúið að veita áhættusamari lán til að auka hreinar vaxtatekjur, sagðist hann „sjá nokkra aðila gera heimskuleg mistök. Þeir eru einfaldlega að gera heimskulega hluti til að búa til hreinar vaxtatekjur.“ Dimon, sem leiddi JPMorgan, stærsta banka Bandaríkjanna, í gegnum fjármálahrunið, sagðist gera ráð fyrir að það muni koma að því að framboð lánsfjár gæti dregist saman, þó hann gæti ekki sagt til um hvenær það muni gerast. Sjá einnig „Sjái maður einn kakka­lakka eru fleiri lík­legir“ Í umfjöllun Bloomberg segir að Dimon hafi undanfarna mánuði varað við útlánagæði kunni að fara versnandi. Hann sagði í haust, í kjölfar gjaldþrots Tricolor, fjármögnunaraðila bílalána, og First Brands, heildsala með bílavarahluti, að gjarnan þegar maður verður var við einn kakkalakka þá sé líklegt að fleiri séu til staðar. Dimon sagði að lánsfjársveiflur komi alltaf á óvart, t.d. þegar kemur að hvaða geirar verða fyrir mestum áhrifum. Að þessu sinni gæti það mögulega orðið hefðbundin hugbúnaðarfyrirtæki vegna áhrifa gervigreindartækni. Þótt það kunni að leiða til þess að JPMorgan þurfi að yfirfara tiltekin útlán, sagðist Dimon efast um að það muni hafa veruleg áhrif á útlánatap bankans. Hvað varðar áhrif gervigreindar á bankastarfsemi þá sagðist hann gera ráð fyrir að JPMorgan muni almennt njóta góðs af henni. „Sé litið til 100 sviða þegar uppi er staðið, þá verðum við sigurvegari á 75 sviðum og tapari á 25 sviðum,“ sagði Dimon.

Share this article