Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.2.2026 | 22:08 | Uppfært 22:25 Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Bolla, bolla, bolla! Samsett mynd Sú var tíðin að börn rifu sig á fætur fyrir allar aldir að morgni bolludags til að ná að flengja foreldra sína með bolluvendi á meðan þeir lágu enn uppi í rúmi og fengu þau bollu að launum fyrir hverja flengingu. Vendina, sem yfirleitt voru útbúnir úr priki og skærlituðum pappír, föndruðu mörg börn sjálf en þeir voru líka áberandi í verslunum í aðdraganda bolludags. Nú vex hins vegar úr grasi kynslóð sem hefur að megninu til aldrei handleikið bolluvönd, hvað þá flengt foreldra sína með slíkum grip. Dagrún Ósk Jóhannsdóttir, doktor í þjóðfræði, hefur velt stöðu bolluvandans í íslensku samfélagi fyrir sér en aðspurð segir hún ólíklegt að pólitísk rétthugsun eigi stóran þátt í brotthvarfi hans. Börn kepptust við að vakna snemma til að bolla mann og annan. mbl.is/Ólafur K. Magnússon Skopstæling af hýðingartæki Spurð hvaðan bolluvöndurinn komi til Íslands vitnar Dagrún í skrif Árna Björnssonar þjóðháttafræðings um fyrirbærið en hann vill meina að vöndurinn hafi komið hingað til lands frá Danmörku og hinum Norðurlöndunum. „Hann hefur líka bent á að bolluvöndurinn minni á það sem fólk notaði í kaþólskum sið til að hýða sig með, af því að þá var til siðs að fólk hýddi sig sjálft í upphafi föstunnar sem er að hefjast á þessum tíma,“ segir hún en það fyrirbæri var kallað stökull. „Þannig að þetta sé einhver skopstæling á honum. En þegar þetta kemur til Íslands þá kemur það ekki undir þessum trúarlegu formerkjum heldur er þetta þá löngu orðið að grínleik fyrir börn“ Ekki alveg útdauður Bolluvendir fóru að verða minna áberandi í kringum bolludaginn upp úr aldamótum. Spurð hver skýringin á því sé segir Dagrún: „Það er alltaf mjög erfitt að svara því af hverju hefðirnar hverfa og breytast en þær eru alltaf að gera það.“ Hún bætir hins vegar við að bolluvöndurinn sé sennilega ekki alveg útdauður enn en á einhverjum leikskólum séu slíkir gripir enn föndraðir og söfn hafi sömuleiðis haldið heiðri vandarins á lofti. Dagrún Ósk Jóhannsdóttir, doktor í þjóðfræði. mbl.is/Eyþór Pólitísk rétthugsun að verki? Nú snýst bolluvandarhefðin að miklu leyti um flengingar. Kann að vera að hin margumtalaða pólitíska rétthugsun hafi spilað einhverja rullu í brotthvarfi vandarins af sjónarsviðinu? „Ég held ekki, ég held að þetta hafi ekkert með það að gera,“ segir Dagrún og bætir við að siðurinn hafi þróast mikið á síðustu öld. „Einhvern tímann þegar hann kom fyrst þá var þetta alls ekki tekið gilt nema sá sem var að bolla væri fullklæddur og hinn væri ber þegar hann var flengdur. Þannig að þá reyndu krakkar og aðrir að ná hvort öðru enn þá í rúminu og krakkarnir reyndu að bolla foreldra sína á meðan þeir voru sofandi. Þannig að þetta er ekki eina breytingin sem hefur orðið á þessum bolluvandarhefðum.“ Hér má sjá konu hengja öskupoka á mann á öskudaginn 1972. mbl.is/Ólafur K. Magnússon Öskupokinn líka á útleið Þá bendir Dagrún á að bolluvöndurinn sé ekki eina hefðin tengd hátíðisdögunum í komandi viku sem hefur misst sess. Það eru náttúrulega öskupokarnir sem að snerust um það að fólk hengdi öskupoka hvort á annað og oft var þetta líka ungt fólk sem var kannski ástfangið hvort af öðru, þá reyndu stúlkur að hengja öskupoka á stráka og strákar á stúlkur og annað slíkt,“ segir hún. „Mín hugmynd um það af hverju öskupokarnir eru að hverfa er annars vegar tímaleysi, að við höfum ekki tíma til þess að vinna einhverja svona öskupoka. Hins vegar held ég að nú göngum við í svo dýrum yfirhöfnum að fólk sé ekki spennt fyrir því að láta hakka í sig með títuprjóni.“ Hún bætir líka við að títuprjónar hafi breyst í gegnum tíðina svo að nú sé erfiðara að beygja þá. „Svo það getur verið eitthvað algjörlega óvænt sem að gengur fram af hefðinni,“ segir Dagrún Ósk að lokum. Twin sisters Sara and Lilja both competing in Miss Iceland Jafnt í Napólí - Hörð barátta um meistaradeildarsæti Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Interpol rannsakar árásina á Grund Lamaðist af hryllingi við uppgötvunina „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Langar enn að eignast Grænland Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Interpol rannsakar árásina á Grund Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Beint: Framsókn kýs nýja forystu Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Fær rúmar 45 milljónir í vasann Twin sisters Sara and Lilja both competing in Miss Iceland Jafnt í Napólí - Hörð barátta um meistaradeildarsæti Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Telur andstöðu við friðlýsingu ekki skaða samstarf Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Rof við Landeyjahöfn Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Interpol rannsakar árásina á Grund Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Beint: Framsókn kýs nýja forystu Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Fær rúmar 45 milljónir í vasann

Share this article