Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Eigandi Hringdu íhugar að flýja ástandið í Bandaríkjunum: „Þetta eru ekki skemmtilegar aðstæður“

  • What: A Norwegian-Icelandic investor is considering leaving the United States due to the political climate.
  • Impact: The investor, Jón Stephenson von Tetzhner, is a shareholder in several Icelandic companies, including Hringdu.
Read Full Article →

„Ég fæ bara oft þessa spurningu: Hvað ert þú enn þá að gera í Bandaríkjunum? Ef ég á að segja eins og er. Ég fæ hana mjög oft. Það er þannig séð ekkert skrítið. Það er ekki þannig að ég upplifi að það sé hættulegt fyrir mig eða mína en þetta eru ekki skemmtilegar aðstæður. Auðvitað er leiðinlegt þegar verið er að ráðast á háskóla, ráðast á fjölmiðla og svo framvegis. Þetta er auðvitað eitthvað sem maður ætti ekki að sjá,“ segir norsk-íslenski fjárfestirinn Jón Stephenson von Tetzhner sem er búsettur í Massachusetts-fylki á austurströnd Bandaríkjanna. Hann íhugar nú að flytja frá Bandaríkjunum í ljósi stjórnmálaástandsins í landinu. Jón er hluthafi í þekktum íslenskum fyrirtækjum eins og Hringdu, mjólkurvinnslunni Örnu, tæknifyrirtækinu Vivaldi og er styrktaraðili íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi. Hann hefur hins vegar búið í Bandaríkjunum í meira en 10 ár eftir að hafa byggt upp þekkt norskt tæknifyrirtæki, Opera, á árunum þar á undan. Í dag er hann þekktastur fyrir Vivaldi-netvafrann sem um fjórar milljónir manna í heiminum nota. Fyrr i febrúar í var Jón í viðtali við norska viðskiptablaðið Dagens Næringsliv þar sem hann sagði frá því að hann íhugaði að flytja frá Bandaríkjunum út af stjórnmálaástandinu í landinu. Rætt er við Jón um stöðuna í Bandaríkjunum og fákeppni á tæknimarkaði í heiminum í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Jón Stephenson von Tetzchner er norsk-íslenskur fjárfestir sem býr í Massachusetts. Hann segist íhuga að flytja frá landinu út af stjórnmálaástandinu í Bandaríkjunum sem lýst hefur verið sem menningarstríði. Jón er þekktastur fyrir Vivaldi-vafrann. Tengslin við Seltjarnarnes Jón hefur ekki verið mjög áberandi í fjölmiðlum á Íslandi í gegnum árin þrátt fyrir talsverð umsvif hér. Hann hefur verið meira áberandi í norskum fjölmiðlum en íslenskum. Ástæðan er sú að mikið var fjallað um tæknifyrirtækið Opera í Noregi á sínum tíma og hafa fjölmiðlar þar haldið áfram að fylgjast með honum eftir að hann flutti til Bandaríkjanna. Hver eru tengsl Jóns við Ísland og Seltjarnarnesið sérstaklega? Íþróttafélagið Grótta spilar í búningum sem merktir eru Vivaldi-vafranum og heimavöllur íþróttafélagsins sömuleiðis. „Ég er fæddur og uppalinn á Seltjarnarnesi. Pabbi er norskur, mamma er íslensk. Ég bjó hjá ömmu og afa úti á Seltjarnarnesi. [...] Mér þykir mjög vænt um Seltjarnarnesið, auðvitað þykir mér vænt um Ísland, það er auðvitað bara eins og það. En ég hef ákveðin tengsl við Seltjarnarnesið. Ég var í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla og bjó þarna alveg þangað til ég flutti út til Noregs. [...] Það er gaman að reyna að styðja Gróttu, þetta er auðvitað lið sem ég spilaði með þegar ég var lítill,“ segir hann. Í viðtalinu ræðir Jón einnig um þær áhyggjur sem hann er með af fákeppni á tæknimarkaði, uppgang gervigreindar og hvernig Vivaldi gengur í samkeppninni við stóru bandarísku tæknirisana.

Share this article