Sagt er frá nýrri íslenskri rannsókn í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Rannsóknin verðskuldar meiri athygli, enda sýnir hún glöggt fram á ískyggilega þróun í íslensku samfélagi. Rannsóknin, sem gerð er af þeim Ólafi Ó. Guðmundssyni, Guðmundi Helga Hjaltalín og Haraldi Jóhannessyni, sýnir mikla fjölgun þeirra einstaklinga sem þiggja örorku- og endurhæfingarlífeyri undanfarna áratugi. Þannig hefur hlutfall einstaklinga á örorku- og endurhæfingarlífeyri hækkað um 49% frá 2000 til 2024, eða úr 6,3% í 9,4%, meðal fólks á vinnualdri. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að breyting hefur átt sér stað á þessu tímabili á sjúkdómsmynd þeirra sem fara á örorku- eða endurhæfingarlífeyri. Mest hefur fjölgað greiningum á þunglyndi og kvíða, verkjavanda, ADHD og einhverfu. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði