- What: A board and negotiation committee considers newly adopted proposals from Reykjavíkurborgar in preschool matters a step in the right direction.
- Impact: The proposals aim to improve the working conditions of preschool teachers, but will not solve all problems.
Innlent | mbl | 18.2.2026 | 15:40 Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Tillögurnar skref í rétta átt en leysa ekki vandann. mbl.is/Eggert Jóhannesson Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara (FL) telur nýsamþykktar tillögur Reykjavíkurborgar í leikskólamálum skref í rétta átt til að bæta starfstæður leikskólaskólakennara. Þær muni þó ekki leysa allan vanda. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar félagsins . Stjórnin og samninganefndin gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga eins og VR og BSRB um að tillögurnar bitni mest á foreldrum með ósveigjanlegan vinnutíma sem hafi lítið bakland. Hafa formenn stéttarfélagana talað um fátækragildru í því samhengi. „Sú gagnrýni er ekki byggð á sérfræðiþekkingu á leikskólastiginu sem skólastigi eða hagsmunum barna, kennara og annars starfsfólks. Leikskólinn er í öllum skilningi menntastofnun fyrir börn. Hann er samkvæmt lögum fyrsta skólastigið. Hans eina lagalega hlutverk felst í því að tryggja börnum gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska,“ segir í ályktuninni. Frétt af mbl.is Svona er nýja Reykjavíkurleiðin Búi til hvata Reykjavíkurleiðin býður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa leikskóladvöl, lægra gjald fyrir 38 tíma dvöl og aukinn afslátt fyrir einstæða forelda og tekjulágar fjölskyldur. Fyrir liggur þó að ákveðinn hópur, sem mun ekki geta nýtt sér styttri dvalartíma, mun þurfa að taka á sig töluverða hækkun gjalda. Í ályktun FL segir að í grunninn miði tillögurnar að því að búa til hvata sem geti leitt til þess að meðaldvalartími barna í leikskólum styttist. „Það er gott markmið í sjálfu sér og getur einnig reynst mikilvægt púsl í að bæta starfsaðstæður með auknum fyrirsjáanleika og betra jafnvægi milli mönnunar og dvalartíma barna. Það er bæði gott fyrir börn, kennara og annað starfsfólk leikskóla. Hvort hvatarnir eru nægilega sterkir mun koma í ljós og þarf þá að auka þá ef markmiðið næst ekki.“ Frétt af mbl.is Óttast að ný leið leggist þungt á vinnandi foreldra Þurfi að vinna áfram að fjölgun kennara Bent er á að tillögurnar muni ekki leysa allan vanda og að flestir geri sér grein fyrir því. Áfram þurfi að vinna markvisst að fjölgun kennara, sem sé lykilatriði í að bæta gæði náms á leikskólastiginu. „Fjölgun kennara er forsenda stöðugleika. Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara mun áfram leggja sitt af mörkum í þeirri vinnu en sú vinna fer fram við kjarasamningsborðið þar sem raunverulega er hægt að ná árangri í að fjölga kennurum,“ segir í ályktuninni. „Nú er í fullum gangi vinna við virðismatsvegferðina sem getur leitt til þess að kennarar, sem eru sérfræðingar í fræðslustarfsemi, verði samkeppnishæfir í launum við sérfræðinga á almennum markaði. Það er sveitarfélaganna að nýta það tækifæri ef þeim er alvara með að gera það sem þarf til að fjölga kennurum.“ Framherjinn frá ÍBV í FH Braut ítrekað gegn ungu barni Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Hringvegurinn opnaður á ný Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Íslendingarnir snúa heim í dag Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Loka sundlaugum vegna kulda og þurrkatíðar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Framherjinn frá ÍBV í FH Braut ítrekað gegn ungu barni Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Hringvegurinn opnaður á ný Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Við finnum að símtölin eru þung“ Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Loka sundlaugum vegna kulda og þurrkatíðar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi