Félag leikskólakennara segir nýsamþykkta Reykjavíkurleið í leikskólamálum ekki leysa allan vanda en gefur lítið fyrir gagnrýni VR og BSRB. Þetta kemur fram í ályktun félagsins. Reykjavíkurleiðin var samþykkt í borgarstjórn í gær. Hún miðast að því að búa til hvata til að stytta dvalartíma barna. Félag leikskólakennara segir að það sé gott í sjálfu sér og geti aukið fyrirsjáanleika og jafnvægi milli mönnunar og dvalartíma barna. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagði í gær að breytingarnar bitnuðu verst á foreldrum í ósveigjanlegum störfum eða þeim sem eiga lítið bakland og ýttu undir stéttaskiptingu. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði að álögur á fullvinnandi foreldra væru auknar og þjónusta skert. Félag leikskólakennara kveðst gefa lítið fyrir þá gagnrýni. Hún sé ekki byggð á sérfræðiþekkingu á leikskólastiginu eða hagsmunum barna, kennara og annars starfsfólks. Stjórn og samninganefnd félagsins ætli að vinna að því að fjölga kennurum við kjarasamningsborðið. „Nú er í fullum gangi vinna við virðismatsvegferðina sem getur leitt til þess að kennarar, sem eru sérfræðingar í fræðslustarfsemi, verði samkeppnishæfir í launum við sérfræðinga á almennum markaði. Það er sveitarfélaganna að nýta það tækifæri ef þeim er alvara með að gera það sem þarf til að fjölga kennurum.“