Innlent | mbl | 18.2.2026 | 17:45 Ólafur Ragnar kveðst óttast Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, ræddi við TRT-sjónvarpsstöðina um Bandaríkin, norðurslóðir og kjarnavopn í München. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/AFP „Þeirri birtingarmynd sem blasir við er skipt til helminga á milli Bandaríkastjórnar og rótgróinna evrópskra stjórnvalda og ég sé ekki alveg hvernig ráða má bót á því,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og núverandi stjórnarformaður Hringborðs norðurslóða, í samtali við tyrkneska miðilinn TRT World á öryggisráðstefnunni í M ünchen í Þýskalandi um helgina. Sagði Ólafur Ragnar stöðuna hafa verið allt aðra áður fyrr, nú sæi hann hins vegar ekki í hendi sér hvaða úrbætur væru tækar í samskiptum Evrópu og Bandaríkjanna með tilkomu hinnar snörpu deilu í Grænlandsmálinu. Spyrill TRT sagði marga hafa litið á ræðu JD Vance varaforseta Bandaríkjanna á öryggisráðstefnunni í fyrra – þegar hann sakaði evrópska leiðtoga um þöggun og sagði þá kæra sig kollótta um vilja kjósenda – sem ákveðin vatnaskil í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu. Innti hún Ólaf Ragnar í framhaldinu eftir því hvort hann teldi ganginn í Grænlandsmálinu undanfarna mánuði marka önnur vatnaskil í samskiptum deiluaðilanna. Í gerjun í mörg ár Forsetinn fyrrverandi svaraði því til að hann hefði ekki litið á ræðuna sem sérstök tímamót í samskiptum yfir Atlantshafið, hins vegar hefði hún sýnt Evrópuleiðtogum með mjög beinum hætti að breyting hefði orðið á Bandaríkjunum. „Sú breyting var búin að vera í gerjun í mörg ár og ég held að við verðum núna að átta okkur á því að þótt við einblínum á Donald Trump [Bandaríkjaforseta] eru mörg hundruð, ef ekki þúsund, manns, eldklárt fólk sem hefur náð árangri á mörgum sviðum og hefur sótt sér menntun í bestu háskóla, sem deilir þessari sýn á heiminn,“ sagði Ólafur Ragnar. Sú sýn hafi verið kjarninn í ræðu Vance í fyrra. „Margir sem hér voru í fyrra yfirgáfu ráðstefnuna með þá hugsun í kollinum að ræða Vance hefði verið einhvers konar fyrirbærasýning [„some kind of a freak show“] en með tímanum held ég að fólk hafi áttað sig á því að efni ræðunnar var veruleiki Donalds Trumps sem Bandaríkjamenn kusu,“ hélt hann áfram. Jafnvel þótt Trump hyrfi af sviðinu sagðist Ólafur Ragnar telja að hópurinn sem hann vísaði til, klára fólkið, héldi áfram með Bandaríkin á þeirri braut sem Trump hefði rutt. Grænland bara eitt nýtt dæmi „Grænland er bara eitt nýtt dæmi um hvernig Bandaríkjamenn líta á heiminn – og það sem varð ljóst hér [á ráðstefnunni um helgina], einkum fyrir tilstilli stjórnvalda Danmerkur og Grænlands, sem töluðu ekki undir rós, er að Grænlandssögunni, sem við köllum svo í fullri kurteisi, er langt í frá lokið. Vissulega eiga einhverjar umræður sér stað núna en enginn veit hvort þeim muni lykta með málalokum sem dönsk stjórnvöld, grænlenska þjóðin eða jafnvel Trump-stjórnin geti sætt sig við,“ sagði Ólafur Ragnar. Bætti hann því við að óvissan væri stærsti þátturinn í hans upplifun af ráðstefnunni. Síðar í viðtalinu sagði forsetinn fyrrverandi að litið hefði verið á Grænlandsáætlun Trumps sem hernaðaráætlun. Svo væri hins vegar ekki, hún væri kerfi sem þyrfti að þróast og byggðist sem slíkt á opinberum fjárframlögum. Hver á að borga? „Þar komum við aftur að spurningunni um peninga. Að auka hernaðarlega viðveru á norðurslóðum kostar gríðarlega fjármuni. Það kallar á mikla styrkingu sjóhers og það krefst ísbrjóta, Bandaríkjamenn eiga ekki nema einn ísbrjót en Rússar eiga nóg af þeim. Það kallar á nútímavæðingu GIUK-svæðisins [hafsvæðisins milli Grænlands, Ísland og Bretlands] og það kallar á gervihnattavæðingu sem fæst NATO-ríki í Evrópu hafa svigrúm til,“ sagði Ólafur og bætti því við að lokaspurningin um viðveru Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðum væri þessi: Hver á að borga brúsann? Spurði tíðindakona TRT þá út í samning Bandaríkjamanna og Rússa um takmarkanir á kjarnavopnaeign, START-samkomulagið sem rann út nú í febrúar, og hvort ástæða væri til að óttast af þeim sökum. „Já,“ svaraði Ólafur Ragnar þegar í stað, „ég er nógu gamall til að muna þann tíma þegar kalda stríðið og kjarnorkuvopnakapphlaupið náðu sínum hápunkti og hve mikið átak þurfti til að leggja það ástand að baki. Gleymdu því ekki að þegar [Ronald] Reagan [þáverandi Bandaríkjaforseti] og [Mikhaíl] Gorbatsjof [þáverandi aðalritari Sovéska kommúnistaflokksins] funduðu á Íslandi var sá fundur afgreiddur sem mislukkaður þó að við nú vitum að hann var upphaf endaloka kalda stríðsins,“ sagði Ólafur Ragnar og játaði að hann bæri kvíðboga fyrir atburðum samtímans. Ekki bara spurning um Rússland og Bandaríkin „Svo já, eitt af því sem ég óttast núna þegar við horfum á atburðarásina er breytingin frá ástandinu á áttunda og níunda áratugnum og fjöldi þeirra landa sem nú eru í stakk búin til að beita kjarnavopnum. Spurningin er ekki lengur bara um Rússland og Bandaríkin, eins og í kalda stríðinu, heldur hvernig hægt sé að halda löndum á borð við Pakistan, Íran og Norður-Kóreu innan ramma skynseminnar þegar kemur að kjarnavopnum,“ hélt hann áfram. Lauk Ólafur Ragnar Grímsson máli sínu á því að þarna væri komin meginástæða þess að helstu forkólfar utanríkisstefnu Bandaríkjanna á síðari hluta 20. aldarinnar hefðu verið þeirrar skoðunar um upphaf 21. aldarinnar að það væri Bandaríkjunum fyrir bestu að útrýma öllum kjarnavopnum. Ólafur Ragnar kveðst óttast Myndskeið: Hvítháfur hringsólaði um kafara Liverpool ætlar ekki að selja lykilmann Fjögur umferðaróhöpp á Suðurlandi í dag Frá Stjörnunni í tyrknesku úrvalsdeildina Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Innilokuð raforka í Blönduvirkjun Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Veita undanþágur vegna líkbrennslu Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Ólafur Ragnar kveðst óttast Myndskeið: Hvítháfur hringsólaði um kafara Liverpool ætlar ekki að selja lykilmann Fjögur umferðaróhöpp á Suðurlandi í dag Frá Stjörnunni í tyrknesku úrvalsdeildina Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Veita undanþágur vegna líkbrennslu Ragnar Þór deilir ekki áhyggjunum Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi