- What: Former Icelandic President Ólafur Ragnar Grímsson believes the US and Europe no longer share the same worldview, making it difficult to improve relations.
- Impact: The differing perspectives between the US and Europe could lead to continued disagreements on global issues.
Umræðunni um yfirráð á Grænlandi er hvergi nærri lokið og óvissan er aðalpersónan í þeirri sögu, að mati Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta og stjórnarformanns Hringborðs norðurslóða. Hann sér ekki hvernig hægt verði að bæta samband Bandaríkjanna og Evrópu, þau deili ekki sömu heimssýn. Raunveruleiki Bandaríkja sem kusu Trump Ólafur Ragnar var á öryggisráðstefnunni í Munchen um helgina og var í viðtali hjá tyrkneska fjölmiðlinum TRT World. Hann var spurður út í samband Bandaríkjanna og Evrópu og stöðuna á því. „Ég sé ekki hvernig er hægt að laga sambandið núna, í hreinskilni sagt,“ sagði Ólafur Ragnar. Evrópa og Bandaríkin deili ekki lengur sömu heimssýn. JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, vakti mikla athygli þegar hann flutti ræðu á öryggisráðstefnunni fyrir ári síðan. Þá hundskammaði hann leiðtoga Evrópu og sagði þá meðal annars óttast kjósendur sína. Ræðan markaði ákveðin kaflaskil í samskiptum Evrópu og Bandaríkjanna. Ólafur Ragnar telur ræðuna ekki hafa verið vendipunkt heldur hafi Bandaríkin verið á leið í þessa átt undanfarin ár. „Ég held að það hafi verið í fyrsta skipti sem Evrópuleiðtogar gerðu sér grein fyrir því fyrir alvöru að Bandaríkin væru að breytast. Þessar breytingar höfðu átt sér stað í Bandaríkjunum í nokkur ár.“ Bandaríkjaforseti sé umkringdur gáfuðu fólki sem hafi útskrifast úr bestu háskólum í Bandaríkjunum og náð árangri á ýmsum sviðum. Það fólk deili þeirri heimssýn sem var kjarni ræðu Vance fyrir ári síðan. Ólafur Ragnar segir suma sem hafi verið á ráðstefnunni fyrir ári hafa haldið að ræða Vance væri furðulegt frávik. „En það er hægt og rólega að uppgötva að þetta er raunveruleiki Bandaríkjanna sem kusu Trump.“ Aðeins tímaspursmál hvenær Norðurslóðir yrðu eitt mikilvægasta svæðið Hann segir að þó að Trump hverfi af sjónarsviðinu eigi þessi hópur fólks eftir að halda áfram vinnu við þessa heimssýn. Grænland sé enn eitt dæmið um það. Ólafur Ragnar telur að umræðunni um Grænland sé hvergi nærri lokið. „Það eru samningaviðræður í gangi en enginn veit hvort Grænlendingar, Danir eða Bandaríkjamenn sætti sig við þá niðurstöðu. Óvissan er aðalpersónan í þessari sögu.“ Öryggi Norðurslóða komst í sviðsljósið með þessum deilum um Grænland. Hann segir að það hafi aðeins verið tímaspursmál hvenær Norðurslóðir yrðu eitt mikilvægasta svæði jarðarinnar varðandi alþjóðastjórnmál, öryggis- og varnarmál og efnahagsmál. Sé horft á jörðina frá Norðurpólnum sést hvernig Norðurslóðir tengi Bandaríkin við Rússland og Grænland. „Fyrr eða síðar hlaut að koma að því að þetta yrði eitt mikilvægasta svæði jarðarinnar, sérstaklega þegar horft er til auðlinda sem eru á þessu svæði.“ Ólafur Ragnar ræddi einnig stöðuna á Gaza og viðræður Bandaríkjanna og Írans um kjarnorkuáætlun landsins. Það sé áhyggjuefni að kjarnorkusamningurinn sé útrunninn. Hann hafi einnig áhyggjur af öðrum ríkjum sem búa yfir kjarnavopnum Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan.