Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkin fái ekki að skerða fullveldi Grænlands

  • What: Discussions between Greenland, Denmark, and the United States are ongoing regarding Greenland's sovereignty.
  • Impact: The talks aim to ensure that Greenland's sovereignty is not compromised.
Read Full Article →

Danir og Grænlendingar eru í sterkari stöðu gagnvart Bandaríkjunum samhliða því að Evrópa leggur meiri áherslu á að standa á eigin fótum, segir Þorgerður Katrín utanríkisráðherra. Samtöl Grænlendinga og Dana við Bandaríkjastjórn séu jákvæðari en fyrir aðeins nokkrum vikum, þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist jafnvel reiðubúinn að beita hervaldi til að ná yfirráðum yfir Grænlandi. „Þó að það mál sé ekki búið, við skulum ekkert gefa okkur það, þá er það komið í þann farveg þar sem diplómasían leiðir áfram,“ segir Þorgerður Katrín í kjölfar öryggisráðstefnunnar í München. Þar talaði Bandaríkjastjórn með mildari hætti en í fyrra og Evrópuríki lögðu áherslu á mikilvægi þess að verða óháðari Bandaríkjunum. Þorgerður segir bæði dönsk og grænlensk stjórnvöld hafa verið í mjög sterku hlutverki á ráðstefnunni, þar sem þau funduðu með þeim bandarísku. Ljóst sé að samtöl þeirra haldi áfram með jákvæðari hætti en áður. „Á endanum verður ekki neitt ákveðið sem skerðir eða snertir fullveldi Grænlands. Íslendingar eru þar alveg skýrir, við stöndum með Grænlendingum, við stöndum með Dönum.“

Share this article