Rúmlega 70 af hundraði Bandaríkjamanna líkar ekki ásælni Donalds Trump forseta í Grænland og hótanir um beitingu hervalds til innlimunar landsins. Flokkssystkini forsetans eru á meðal þeirra ósáttu samkvæmt niðurstöðum könnunar sem AP-fréttaveitan og NORC Center for Public Affairs Research gerðu dagana 5. til 8. febrúar með þátttöku 1.156 bandarískra ríkisborgara. Þá hafði Trump dregið í land með beitingu hervalds og beitingu tolla á þau ríki sem andæfðu yfirtöku á Grænlandi. Sjö prósent óháðra kjósenda kváðust styðja hugmyndir Trumps og 15% Demókrata. Fyrri kannanir sýna að Bandaríkjamenn eru klofnir í afstöðunni til yfirtöku Grænlands þótt hernaðaríhlutun njóti lítils stuðnings. Um 24 prósent kváðust styðja athæfi forsetans í garð Grænlands og 72 af hundraði sögðust andvíg. Það er hærra hlutfall en almennt telst andsnúið utanríkisstefnu Trumps. Athygli vekur að næstum helmingur Repúblikana kvaðst ekki styðja aðferðafræði forsetans, þótt almennt styðji þeir hann gegnum þunnt og þykkt. Þar má nefna brottnám Nicolasar Maduro Venesúelaforseta og loftárásir á Íran í fyrrasumar. Greinendur AP telja það sýna að Grænlandsmálið hafi þannig skapað veikan blett á Trump-stjórninni.