- What: Police are continuing to search the Royal Lodge, the former home of Prince Andrew Mountbatten-Windsor, as part of an investigation.
- Impact: The investigation focuses on whether he shared sensitive information with convicted sex offender Jeffrey Epstein while serving as a British trade envoy.
Rannsóknarlögreglumenn halda í dag áfram húsleit á Royal Lodge, áður heimili Andrews Mountbatten-Windsor í Berkshire, samkvæmt frétt BBC nú í morgunsárið. Mountbatten-Windsor var látinn laus síðdegis í gær eftir að hann var handtekinn vegna gruns um brot í opinberu starfi. Það var í fyrsta skipti um fjögurra alda skeið sem nokkur úr konungsfjölskyldunni sætir handtöku. Prinsinn fyrrverandi hefur þvertekið fyrir að hafa brotið nokkuð af sér en rannsókn lögreglunnar í Thames-dal beinist að því hvort hann hafi deilt viðkvæmum upplýsingum með kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein þegar hann var viðskiptaerindreki Bretlands. Mountbatten-Windsor hefur ekki svarað beiðnum BBC um viðbrögð við handtökunni í gær. Hann sneri heim á Sandringham-setrið í gær. Hefðbundið er að fólki sé sleppt fljótlega eftir handtöku fyrir svokallaða hvítflibbaglæpi án tryggingar en lögregla áréttar að rannsókninni sé hvergi nærri lokið. Ekki er útilokað að Mountbatten-Windsor verði handtekinn aftur eða kallaður til yfirheyrslu. Næsta skref lögreglu og saksóknara væri að ákveða hvort nægar sannanir verði fyrir ákæru, og þá fyrir brot í opinberu starfi. Engin tímamörk eru á hvenær það gæti orðið en rannsókn svo umfangsmikils máls gæti tekið nokkurn tíma.