- What: Police are searching the house of Andrew Mountbatten-Windsor in Windsor as part of an ongoing investigation.
- Impact: The investigation is related to the Epstein documents released by the US Department of Justice.
Atburðarásin undanfarinn rúman sólarhring hefur verið söguleg, allt frá því Andrew var handtekinn í gærmorgun á heimili sínu í Sandringham og hnepptur í varðhald á nærliggjandi lögreglustöð. Leitað hefur verið bæði þar og á fyrra heimili hans í Windsor, en hann var gerður brottrækur þaðan fyrr í vetur. Þessi atburðarás varð til þess að Karl konungur sendi frá sér undirritaða yfirlýsingu, sem er annars sjaldgæft að þjóðhöfðingi þar geri, þar sem hann sagði að réttvísin yrði að hafa sinn gang og að konungdæmið myndi aðstoða lögregluna í þeirra rannsókn. Lögreglan leitar enn í Windsor, og meðal annars hefur ómerktum lögreglubílum farið fjölgandi þar. Andrew Mountbatten Windsor var í 11 tíma yfirheyrslu hjá lögreglu áður en honum var sleppt í gærkvöld. Hann er enn til rannsóknar og áfram er leitað í fyrra aðsetri hans í Windsor. Rannsóknin snýr að því að Epstein-skjölin sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti í síðasta mánuði gefa til kynna að Andrew hafi sent Jeffrey Epstein trúnaðarupplýsingar þegar hann var viðskiptaerindreki breska ríkisins. Nákvæmt ákæruefni er misferli í opinberum störfum – nokkuð sem er yfirleitt beitt gegn gerðum lögreglumanna og fangavarða en hefur öðru hverju líka verið notað á aðra opinbera starfsmenn, þar á meðal stjórnmálamenn. Fjölmiðlar hafa þegar upplýst að í þessari rannsókn sé kynferðisbrot ekki til rannsóknar en fórnarlömb Epsteins hafa skorað á lögreglu að rannsaka þær ásakanir líka. Ed Owens sérfræðingur í konungsfjölskyldunni sagði við AFP-fréttastofuna að nú væru mikilvægir dagar framundan hjá konungsfjölskyldunni. Margt væri þó óljóst, meðal annars hvort Andrew yrði ákærður. „Það er það óþekkta í öllu þessu máli sem er áhyggjuefni fyrir konungsfjölskylduna, og hugsanlega ógn við hana,“ segir hann. Aðrir fréttaskýrendur hafa bent á að Karl konungur hafi í yfirlýsingu sinni í gær skapað fjarlægð frá Andrew, meðal annars með því að nota fullt nafn um bróður sinn, og ef fjölskyldan haldi áfram vel á málunum sé hægt að minnka skaðann. Andrew hefur haldið til í íbúð sinni í Sandringham frá því honum var sleppt. Hann fékk þau skilaboð að hann væri ekki laus allra mála heldur enn í rannsókn. Honum voru hins vegar ekki settar neinar takmarkanir – hann þurfti ekki að reiða fram tryggingu og hann er algjörlega frjáls ferða sinna. Hvað gerist næst er óljóst en möguleikarnir eru nokkrir. Rannsóknin heldur í það minnsta áfram og handtakan þýðir að lögreglan hefur aðgang að fleiri gögnum en áður, til dæmis gögnum úr tölvum og símum. Hvort það leiði til ákæru eða ekki kemur í ljós eftir því sem rannsókninni vindur fram.