Bresku götublöðin fjalla eðlilega mikið um handtöku Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, í gær. Með henni fylgir eina myndin sem náðist af honum þegar honum var ekið frá lögreglustöðinni í gærkvöld eftir að hafa verið í haldi og yfirheyrður í 11 tíma. Forsíðufyrirsögn The Sun segir: „Nú svitnar hann.“ Þar er vísað í frægt viðtal sem hann fór í á BBC, þar sem hann regndi frásögn Virginiu Giuffre um að hann hefði verið sveittur nálægt henni með því að segja að hann geti ekki svitnað. Þessi skýring hefur ekki þótt trúverðug. Þá vísar blaðið í að hann sé sá fyrsti í konungsfjölskyldunni til að vera handtekinn frá árinu 1647. „Leigubíll fyrir Andy,“ segir Daily Star með orðaleik tengdum leigubílafyrirtækinu Andy. Það tengist þó ekki fyrrverandi prinsinum á annan hátt en með nafninu. Daily Mirror vísar á sinni forsíðu í yfirlýsingu Karls konungs um að réttvísin verði að hafa sinn gang. „Fyrrverandi prinsinum ekið frá lögreglustöð meðan hann felur sig í bílnum sínum,“ segir í minni fyrirsögn, rétt til að endurspegla stöðuna sem hann er nú kominn í. „Fall,“ segir Daily Mail og bætir við: „Andrew virtist útkeyrður, skömmustulegur og ásóttur þegar honum var sleppt úr haldi 11 klukkustundum eftir að handtaka hans kallaði mestu ógnina við konungsfjölskylduna á síðari tímum.“