Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel

  • What: Former Icelandic President Ólafur Ragnar Grímsson wrote in his diary about his acquaintance with Andrew Mountbatten-Windsor, who offered assistance with the Icesave dispute at the Davos conference in 2010.
  • Impact: The article discusses potential misconduct by Andrew Mountbatten-Windsor, including sharing confidential information related to Iceland during his tenure as a British trade envoy.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.2.2026 | 13:46 Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Andrew Mountbatten-Windsor bauð Ólafi Ragnari aðstoð við lausn deilunnar en lak síðar trúnaðarupplýsingum um hana. Samsett mynd/AFP/mbl.is/Ómar Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, skrifaði í dagbók sína að hann og Dorrit, eiginkona hans, þekktu Andrew Mountbatten-Windsor fyrrverandi Bretaprins vel. Á viðskiptaráðstefnunni í Davos árið 2010 bauðst Andrew til að hjálpa Ólafi við að leysa Icesave-deiluna. Þetta kemur fram í bók Ólafs Þjóðin og valdið: Fjölmiðlalögin og Isave sem kom út árið 2024 en í henni birtir Ólafur valin dagbókarskrif úr forsetatíð sinni. Andrew var handtekinn af breskum lögregluyfirvöldum í gær vegna gruns um misferli í opinberu starfi í embættistíð hans sem viðskiptaerindreki Bretlands. Ekki liggur fyrir nákvæmlega í hverju meinta brot hans felst en fram hefur komið að hann deildi meðal annars trúnaðarupplýsingum sem tengjast Íslandi áfram í tíð sinni í embætti. Frétt af mbl.is Andrew laus úr haldi Sendi upplýsingarnar beint áfram Breska dagblaðið Telegraph greindi frá því í síðustu viku að árið 2010 hefði Andrew sett ritara sínum það fyrir að hafa samband við breska fjármálaráðuneytið og óska þar eftir trúnaðarupplýsingum um samskipti Íslendinga og Breta í kjölfar bankahrunsins og Icesave-deilunnar. Bar Mountbatten-Windsor því við að hann hefði hitt forsætisráðherra Íslands á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss í janúar 2010, erindið til ráðuneytisins var sent í febrúar það ár, og hefði áhuga á að kynna sér „upplýsingar um nýjustu stöðuna á milli Bretlands og Íslands hvað inneignirnar varðar og svindlið í kringum ábyrgðirnar“. Ráðuneytið sendi upplýsingarnar og þeim kom Mountbatten-Windsor áfram til Jonathans Rowlands vinar síns en þeir feðgar, David og Jonathan Rowland, yfirtóku Kaupþing í Lúxemborg árið eftir og breyttu nafni bankans í Banque Havilland. Andrew, fyrrverandi Bretaprins. AFP/Daniel Leal Frétt af mbl.is Sagðist hafa hitt forsætisráðherra Íslands „Við þekkjum hann vel“ Eitt af því sem vakti athygli við þessa frásögn er að Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra, sótti ekki ráðstefnuna á Davos árið 2010. Það gerði Ólafur Ragnar, þáverandi forseti, hins vegar. Í samtali við mbl.is segir Ólafur Ragnar að hann hafi vissulega hitt Andrew á ráðstefnunni en hann gerir grein fyrir þeim kynnum í bók sinni þar segir meðal annars: „Við Dorrit fórum um kvöldið 28.1. í móttöku sem hertoginn af York, Andrew prins, hélt fyrir hönd Bretlands en við þekkjum hann vel.“ Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Skilaboð inn í innsta hring bresku ríkisstjórnarinnar!“ Þá rekur Ólafur Ragnar í bókinni hvernig hann hitti Peter Mandelsson, sem eins og Andrew er til skoðunar hjá breskum lögregluyfirvöldum vegna tengsla sinna við barnaníðinginn Jeffery Epstein, í umræddu boði. Þar ræddi Ólafur við Mandelson um Icesave-deiluna sem var í hámæli á þessum tíma. Taldi Ólafur að þessar samræður hefðu farið vel en Andrew ræddi deiluna líka við hann degi seinna. „Andrew prins sagði við mig þegar ég hitti hann næsta dag, þar sem hann var að tala við Hákon, krónprins Noregs, að ef hann gæti hjálpað til við að leysa deiluna þá væri hann tilbúinn til þess! Þetta voru allt mjög merkileg skilaboð. Skilaboð inn í innsta hring bresku ríkisstjórnarinnar!“ segir í dagbókarfærslu Ólafs. Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Viðar Örn heim í Selfoss Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Radarinn fer aftur í loftið Ótrúleg stemning á útgáfutónleikum Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Svartsýni í könnun SI um markaðinn Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Viðar Örn heim í Selfoss Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Radarinn fer aftur í loftið Ótrúleg stemning á útgáfutónleikum Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Andrew laus en enn til rannsóknar Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Tvöföld veikindi hjá því opinbera „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article