Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjölmiðlanefnd bætir við manni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.2.2026 | 11:30 Fjölmiðlanefnd bætir við manni Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Karítas Fjölmiðlanefnd auglýsir eftir starfsmanni í Morgunblaðinu í gær og hið sama gerir Netvís, en Netvís er deild innan Fjölmiðlanefndar. Nú vinna sex starfsmenn hjá Fjölmiðlanefnd og fjórir hjá Netvís, en þrír þeirra eru jafnframt starfsmenn Fjölmiðlanefndar. Heildarfjöldi starfsmanna sem heyra undir Fjölmiðlanefnd er því sjö manns. Í samtali við Morgunblaðið segir Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd og einn staðgengla framkvæmdastjóra nefndarinnar, sem er í leyfi þessa dagana, að um viðbót sé að ræða hjá nefndinni, en þar er auglýst eftir lögfræðingi til starfa. Ekki fengust skýr svör um hvort verið væri að bæta við starfskrafti hjá Netvís, en um „tilfæringar“ væri að ræða innan þeirrar deildar Fjölmiðlanefndar. Segir Þóra ekki tímabært að ræða hver sé að láta af störfum hjá Netvís. Lögfræðistörf og fræðsla Þegar skoðað er skipurit Fjölmiðlanefndar annars vegar og Netvís hins vegar sést að þrír af fjórum starfsmönnum Netvís starfa jafnframt hjá Fjölmiðlanefnd, en þar er enginn sagður vera að hætta. Af því leiðir að nokkuð ljóst er hver er að láta af störfum hjá Netvís, þótt Þóra vilji ekki staðfesta hver það sé. Starfssvið þess lögfræðings sem Fjölmiðlanefnd hyggst ráða lýtur að almennum lögfræðistörfum, þátttöku í stefnumörkun, samskiptum við stjórnsýslu og þátttöku í norrænu og evrópsku samstarfi. Þeim starfsmanni sem Netvís vill ráða er m.a. ætlað að sinna verkefnum sem lúta að fræðslu fyrir ólíka aldurs- og samfélagshópa og vinna að gerð kennslu- og fræðsluefnis fyrir þá. Einnig að vinna skýrslur upp úr reglulegum könnunum um færni og þekkingu barna og ungmenna sem og fullorðinna á nýtingu samfélagsmiðla og leitarvéla, ásamt því að þekkja efni sem búið er til af gervigreind. Þá er starfsmanninum ætlað að halda utan um Tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi og hafa frumkvæði að nýjum verkefnum til að efla færni og þekkingu almennings á nýrri tækni. Í báðum tilvikum er krafist háskólamenntunar. Áskilið er að hinn löglærði starfsmaður Fjölmiðlanefndar sé með kandídats- eða meistarapróf í lögfræði og eigi a.m.k. fimm ára háskólanám að baki. Starfsmaður Netvís skal búa yfir háskólamenntun sem nýtist í starfi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Handtaka Andrews vatn á myllu þingmanna Coutinho í vandræðum í Brasilíu Fjölmiðlanefnd bætir við manni „Við eigum besta kjöt í heimi“ Tugir barna á vegum borgarinnar vistuð í Bakkakoti Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Piparúða beitt gegn ungum dreng Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Fannst örendur í fangelsinu Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Handtaka Andrews vatn á myllu þingmanna Coutinho í vandræðum í Brasilíu Fjölmiðlanefnd bætir við manni „Við eigum besta kjöt í heimi“ Tugir barna á vegum borgarinnar vistuð í Bakkakoti Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn „Dóttir þín lifir ekki lengur“ „Það var bara allt á floti“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article