Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Leggur til að Fjölmiðlanefnd verði lögð niður

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.3.2026 | 15:32 Leggur til að Fjölmiðlanefnd verði lögð niður Rósa Guðbjartsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leggur til að Fjölmiðlanefnd verði lögð niður eða þá dregið verulega úr umsvifum hennar. „Nú þegar blikur eru á lofti í efnahagslífinu draga fyrirtæki á almennum markaði mörg hver saman seglin en ríkið blæs út sem og stofnanir þess. Marga rak í rogastans þegar nýtt starf hjá fjölmiðlanefnd var auglýst laust til umsóknar nú fyrir skemmstu,“ sagði Rósa undir fundarliðnum Störf þingsins á Alþingi fyrr í dag. Frétt af mbl.is Fjölmiðlanefnd bætir við manni „Vegið mjög alvarlega að tjáningarfrelsinu“ Sagðist hún enn fremur hafa farið að velta fyrir sér tilgangi nefndarinnar og hlutverki í kjölfar þess að nefndin fór að krefjast þess að Þórarinn Hjartarson, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, myndi skrá hlaðvarpið sitt sem fjölmiðil. „Það má velta fyrir sér hvaða valdheimildir fjölmiðlanefnd hefur til slíks eða hverra hagsmuna eða erinda hún er að ganga og enn heldur nefndin áfram og ítrekar nú kröfur sínar. Það er umhugsunarvert að hér á okkar litla landi séu hlaðvörp einstaklinga sérstaklega í skotlínu ríkisins, ólíkt því sem þekkist í mörgum þeirra landa sem við gjarnan berum okkur saman við. Fjölmiðlanefnd vill ákveða hvaða hlaðvörp eru fjölmiðill og hver ekki. Bregðist einyrkinn ekki við erindinu blasir við stjórnvaldssekt sem hleypur á milljónum króna. Það gefur augaleið að einyrki stendur ekki undir slíku. Hér er því vegið mjög alvarlega að tjáningarfrelsi í landinu og að auki eru þessi hlaðvörp á erlendum streymisveitum sem ríkið ætti ekki að hafa neitt boðvald yfir,“ sagði Rósa Þórarinn Hjartarson, hlaðvarpsstjórnandi Einnar pælingar. mbl.is/Hallur Már Kjörið tækifæri til að létta á ríkisrekstrinum Bætti hún við að komið væri að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að svara af hverju það væri svo brýnt að ríkið væri að „hamast á hlaðvarpsstjórnendum.“ Sömuleiðis ætti ráðherrann að skýra af hverju íslenska ríkið væri með aðra stefnu í þessum efnum en aðrar þjóðir. „Kostnaður við rekstur fjölmiðlanefndar er um 120 milljónir króna á ári. Ég legg því til að nefndin verði lögð niður eða verulega dregið úr umsvifum hennar. Var ekki eitt af verkefnum og markmiðum ríkisstjórnarinnar að hagræða? Hér er komið kjörið tækifæri til að létta á ríkisrekstrinum og um leið létta á eftirlitshlutverki ríkisins,“ sagði þingmaðurinn að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mikill skellur fyrir Stjörnuna Tífalt dýrari en lax Samfylkingin nýtur minni stuðnings Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Leggur til að Fjölmiðlanefnd verði lögð niður Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Átökin í Mið-Austurlöndum breiðast út Blint getur orðið á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustan hríð Búið að tendra í púðurtunnu Eignir meira virði en bókhald sýnir Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Mikill skellur fyrir Stjörnuna Tífalt dýrari en lax Samfylkingin nýtur minni stuðnings Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Leggur til að Fjölmiðlanefnd verði lögð niður Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þak sendiráðsins hrunið að hluta Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Blint getur orðið á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustan hríð Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article