Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrstu einstaklingsverðlaun Dana á Vetrarólympíuleikum

Read Full Article →

Á lokahelginni eru margar af stærstu og mest spennandi greinum Vetrarólympíuleikanna. Ein þeirra er lokagrein skíðaskotfimi kvenna, hópstartið. Þá ræsa 30 bestu skíðaskotfimikonur heims á sama tíma. Gengnir eru 12 og hálfur kílómetri og skotið fjórum sinnum. Viktor Hald Thorup er þjóðhetja í Danmörku eftir að hann vann silfurverðlaun í skautahlaupi karla í dag. Þetta eru fyrstu einstaklingsverðlaun Danmerkur frá upphafi Vetrarólympíuleikanna. Keppt var til úrslita í mörgum spennandi greinum í dag. Skíðaskotfimikeppni kvenna hefur verið æsispennandi á leikunum í ár og það breyttist ekki í dag. Á endanum var það svo Oceane Michelon frá Frakklandi sem stakk af á endasprettinum. Þetta eru fyrstu gullverðlaun hennar í einstaklingsgrein en hún hafði áður unnið gull í boðgöngu. Landa hennar, Julia Simon, varð önnur og Tereza Vobornikova frá Tékklandi þriðja. Söguleg verðlaun Danmerkur Lokagrein skautahlaups var í dag þegar hópstart karla og kvenna fóru fram. Í hópstarti ræsa 16 bestu keppendurnir og skauta 16 hringi á ísnum, alls 6400 metra. Á hringunum 16 eru svo fjórir sprettir sem gefa stig og skiptist því á taktísk stöðubarátta og hraðir endasprettir. Jorrit Bergsma frá Hollandi vann gullið og Viktor Thorup fékk silfur og eru það fyrstu einstaklingsverðlaun Dana á Vetrarólympíuleikum frá upphafi. Andrea Giovannini fékk brons. Þetta eru jafnframt aðeins önnur verðlaun Dana frá upphafi á Vetrarólympíuleikum eftir silfur danska kvennalandsliðsins í krullu á leikunum 1998. Tíunda gullið og met hjá Hollandi Við tóku svo æsispennandi úrslit í kvennaflokki þar sem hollenska skautakonan Marijke Groenewoud stóð uppi sem sigurvegari. Hún sprengdi keppnina upp í sprett undir lokin og vann fyrsta ólympíugull sitt í einstaklingsgrein. Þetta voru tíundu gullverðlaun Hollendinga á leikunum sem er met hjá hollenska liðinu á einum og sömu leikunum. Gull og silfur til Ítalíu í skíðaati Skíðaat er, eins og nafnið gefur til kynna, ákaflega hröð og viðburðarrík grein. Eftir keppni morgunsins stóðu fjórir bestu karlarnir eftir í úrslitum í hádeginu. Keppnin er býsna einföld, fyrsti maður í mark vinnur. Heimamenn höfðu ærna ástæðu til að fagna í dag. Simone Deromedis kom fyrstur í mark og landi hans, Federico Tomasoni, rétt marði Svisslendinginn Alex Fiva á endalínunni og vann silfur. Skíðaatið var í beinni útsendingu á RÚV 2. Viktor Hald Thorup er þjóðhetja í Danmörku eftir að hann vann silfurverðlaun í skautahlaupi karla í dag. Þetta eru fyrstu einstaklingsverðlaun Danmerkur frá upphafi Vetrarólympíuleikanna. Keppt var til úrslita í mörgum spennandi greinum í dag. Klæbo maður dagsins Fyrr í dag vann Norðmaðurinn Johannes Hosflot Klæbo sögulegan sigur í 50 km skíðagöngu karla. Hann vann þar með gullverðlaun í öllum sex keppnisgreinum sínum á leikunum. Dagur Benediktsson var meðal keppenda en var hringaður þegar rúmir 10 km voru eftir og þar með úr leik. Úrslitaleikurinn í krullu karla klukkan 18 Úrslitaleikur karla í krullu hefst klukkan 18 og þar eigast við Kanada og Bretland. Krullan hefur vakið athygli á leikunum, en ekki endilega af góðu. Kanadíska liðið var staðið að svindli í riðlakeppninni og hleypti það krullusamfélaginu í háaloft því krulla hefur þótt einstaklega heiðarleg íþrótt þar sem keppendur hafa sjálfir dæmt viðureignirnar að mestu. Úrslitaleikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV 2.

Share this article