Beitir NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.650 tonn af loðnu. Aflinn fékkst í tveimur köstum grunnt á miðri Meðallandsbugt. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem rætt er við Tómas Kárason skipstjóra sem segir mikið hafa verið að sjá í loðnugöngunni sem veitt hafi verið úr. Um sé að ræða þriggja til fjögurra mílna loðnulengju svo magnið sé töluvert. Fyrra kastið 730 tonn og hið síðara 930 tonn „Þessi ganga fer mun grynnra en fyrri gangan sem veitt hefur verið úr. Skipin sem þarna voru að veiðum voru að fá góð köst. Fyrra kastið okkar var 730 tonn og hið síðara 930 tonn. Við komum til hafnar klukkan níu í morgun og það verður byrjað að landa strax eftir hádegi. Þessi loðna er mjög falleg og má fullyrða að hér sé góð Japansloðna á ferðinni. Menn eru afskaplega glaðir að fá þessa nýju göngu og Barði NK var byrjaður að veiða þarna í morgun. Þessi ganga er mikið fagnaðarefni,” er haft eftir Tómasi Kárasyni á svn.is .