Loðna er veidd úr þremur mismunandi göngum þessa dagana. Út af Hjörleifshöfða er veidd loðna sem hentar enn til Japansfrystingar, í Breiðafirði loðna til hrognavinnslu og djúpt vestur af landinu er veitt úr vestangöngu sem hentar einnig til Japansfrystingar. Tómas Kárason skipstjóri á Beiti NK segir mun meira af loðnu við landið en búist hafði verið við. Ört gangi á kvótann og góð innistæða sé fyrir endurskoðaðri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar með aukningu í huga. Beitir NK var úti fyrir Fjallaskaga út af Vestfjörðum á heimleið með 2.300 tonn þegar Fiskifréttir heyrðu í Tómasi Kárasyni skipstjóra. Veiðum lauk þar í fyrrinótt og framundan var nálægt 400 mílna sigling til Neskaupstaðar réttsælis um landið. Ráðgert er að skipið kæmi til hafnar í Neskaupstað í dag. „Þarna eru stórar torfur af ágætis hrygningarloðnu. Við erum með 2.300 tonn og af því er um 60% hrygna. Þarna voru fleiri skip á sömu slóðum og almennt mjög góð veiði. Það var fínasta veður þegar við lögðum af stað heim og það voru nokkrir að þarna ennþá. Það voru feykilegar lóðningar þarna í nótt. Þessi loðna er ekki úr vestangöngunni, hún er talsvert utar. Þessi gekk grunnt inn með kantinum á norðvestanverðu Snæfellsnesinu og inn í Breiðafjörðinn. Menn voru að veiða úr úr vestangöngunni í fyrradag [sunnudag] dálítið norðar og utar. Það er dálítið í það að sú loðna sé komin að hrygningu. Tómas Kárason skipstjóri fyrir miðri mynd ásamt áhöfn sinni á Beiti NK þegar makríll var veiddur. Mynd/aðsend Menn eru almennt sammála um að það sé meira af loðnu á ferðinni en talað var um í upphafi og mælingar gáfu til kynna. Við erum að veiða úr þessari upprunalegu göngu og svo erum við að fá vestangöngu. Núna undanfarna daga er líka alltaf að bætast við loðna út af Ingólfshöfðanum og þar vestur úr. Þar er önnur ganga,“ segir Tómas. Gengur ört á kvótann Hann segir ganga ört á kvótann og hann verði búinn á Beiti NK eftir tvo túra. Ástæða væri til þess að endurskoða þessa úthlutun en það gerist aldrei þegar svona langt er liðið á vertíðina. „En þetta hefði alveg getað verið 300 þúsund tonna vertíð miðað við veiðina núna. Það verður því talsvert magn sem ekki verður veitt á þessari vertíð." Það sem af er loðnuvertíðinni hefur Beitir NK veitt um 8.700 tonn og standa þá eftir um 3.700 tonn sem myndu nást í tveimur túrum. Tómas segir að eftir löndun verði annað hvort haldið á ný í hrygningarloðnuna í Breiðafirði eða hrygningarloðnu sem er núna austan við Vestmannaeyjar. „Núna er verið að veiða fínustu loðnu í Japansfrystingu út af Hjörleifshöfða og á sama tíma erum við að veiða í Breiðafirðinum fína loðnu sem er tilbúin í Japanshrogn. Það er þannig verið að vinna á tveimur stöðum í einu. Nú eru menn samt aðallega að hugsa út í hrognaloðnuna því það hefur mikið verið fryst,“ segir Tómas.