Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Syndafall: „Hún er bara svo snilldarlega fléttuð“

Read Full Article →

„Hér erum við með klassíska Yrsu. Það eru margir þræðir sem virðast algjörlega ótengdir og spennan magnast,“ segir Ingibjörg Iða Auðunardóttir gagnrýnandi Kiljunnar um Syndafall eftir Yrsu Sigurðardóttur. „Þarna erum við með konu sem hlaut nýverið kuðungsígræðslu og fer að heyra sérkennileg hljóð á sama tíma og hún er beðin um að meta innbú manns sem hvarf með dularfullum hætti.“ Þessi söguþráður sögunnar þótti Ingibjörgu mjög grípandi. Næst er sagt frá konu sem hefur lifað í skugga ofbeldis sem hún var beitt fyrir áratugum. Hún telur sig vera að hefna sín á manninum sem braut á henni og fremur glæp. „Hún engist um á þessum blaðsíðum bókarinnar og maður finnur svo til með henni.“ Þar veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að gefa sig fram eða ekki og hvort lögreglan sé komin á slóð hennar. „Svo ertu með þriðja söguþráðinn, sem er hægastur af stað myndi ég segja. Það er aðeins erfiðara að komast inn í hann.“ Þar segir frá hjónum þar sem eiginkonan er mikil framakona en segir upp starfi sínu án fyrirvara og vísar í kulnun. Eiginmaðurinn er „aumingjalegur“ rithöfundur sem þarf allt í einu að leysa fjárhagsvanda fjölskyldunnar. Hann leggur land undir fót um hávetur til að heyja að sér efni í skáldsögu sem hann hyggst byggja á dramatískum atburðum í sögu fjölskyldunnar en það fer ekki eins og hann ætlaði. „Maður les þetta og hugsar: Það getur ekki verið að þessar sögupersónur geti tengst,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir kollegi Ingibjargar. „En hún er náttúrlega snillingur í því. Þetta er nokkuð dæmigerð Yrsa. Ég verð samt að segja að ég er hrifnust af henni þegar hún er óhugguleg.“ „Mér fannst hún vera fulljarðbundin fyrir minn smekk.“ Í lokin er svo uppljóstrað um mál sem tengist einni persónunni en Kolbrúnu þótti viðbrögð hennar ekki trúverðug. „En ég les Yrsu um hver jól og ég get ekki sagt að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum en þetta er ekki með bestu Yrsum sem ég hef lesið – en ég ætlaðist nú ekkert til þess heldur.“ Snilldarlega vel fléttað Ingibjörg segir þær Kolbrúnu eiga það sameiginlegt að vera miklir Yrsu-aðdáendur en sjálf sé hún hrifnari af hversdagslegri bókum Yrsu, öfugt við Kolbrúnu. „Sem er einmitt þessi bók en líka síðasta bókin hennar. Hún er ekkert óhugnanleg, aðeins, en hún er bara svo snilldarlega fléttuð.“ „Hvernig dettur henni þetta í hug? Mér leikur hugur á að vita það.“ Það sé engin rannsóknarlögregla sem lesendum annaðhvort líki vel við eða ekki að flækjast fyrir. „Þetta er bara plott. Ekkert meira og ekkert minna.“ Í nýjustu spennusögu Yrsu Sigurðardóttur, Syndafalli, fléttast saman þrír ólíkir söguþræðir sem gagnrýnendur Kiljunnar furða sig yfir hvernig henni hafi tekist að tengja saman. Bókin sé „dæmigerð Yrsa“ en þó ekki jafn óhugnanleg og oft áður. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Syndafall eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article