Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mun meira atvinnuleysi samkvæmt tölum Hagstofunnar en Vinnumálastofnunar

Read Full Article →

Í síðasta mánuði voru 17.400 landsmenn atvinnulausir, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Það jafngildir 7,3 prósenta atvinnuleysi, 3,1 prósentustigi meira en á sama tíma fyrir ári. 75,5 prósent voru starfandi og atvinnuþátttaka 81,6 prósent samkvæmt sömu könnun. Skráð atvinnuleysi var 4,9 prósent í janúar, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar sem heldur utan um atvinnuleysisskráningar. Það var 0,7 prósentum meira atvinnuleysi en í janúar í fyrra. Mun fleiri karlar en konur voru á atvinnuleysisskrá. Líkt og undanfarið var atvinnuleysið langmest á Suðurnesjum, 8,9 prósent. Munurinn á tölum Hagstofunnar og Vinnumálastofnunar skýrist af því að Hagstofan leggur könnun fyrir fólk og spyr það út í stöðu sína á vinnumarkaði meðan Vinnumálastofnun telur þá sem skrá sig atvinnulausa.

Share this article