Innlent | Morgunblaðið | 27.2.2026 | 7:36 Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Málið varðar kjötvinnslu í „græna gímaldinu“. mbl.is/Eggert Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Reykjavíkurborg viðurkennir að hafa veitt umboðsmanni Alþingis rangar upplýsingar um meginatriði máls í tengslum við horfna umsögn skipulagsfulltrúa vegna kjötvinnslu við Álfabakka. Umboðsmaður hefur í framhaldi af því óskað eftir frekari upplýsingum og skýringum frá borginni. Greint var frá því á síðasta ári að Reykjavíkurborg hefði tekið fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa með umsögn um kjötvinnslu í vöruskemmunni við Álfabakka, breytt henni og birt hana aftur daginn eftir. Í upphaflegri fundargerð sagði skipulagsfulltrúinn að á Íslandi væri leyfi til að gera ljótar byggingar. „Löggjöfin spyr hvorki um fagurfræði né samhengi. Það er því sorgleg staðreynd að þeir sem fara með völd, fjármagn og fyrirferðarmikinn rekstur skuli ekki sýna frekari metnað í uppbyggingu á miðsvæðum höfuðborgarsvæðisins,“ stóð þar jafnframt. Í kjölfarið óskaði umboðsmaður eftir skýringum frá borginni og fékk rangar upplýsingar eins og borgin hefur nú viðurkennt. Í fundargerð sem umboðsmaður vísar m.a. til í bréfi sínu til borgarinnar sem birt var í gær kemur fram að starfsmaður borgarinnar hafi sagt það „alvanalegt“ að afmá umfjallanir úr fundargerðum, en borgin veitti umboðsmanni þær upplýsingar að almennt tíðkaðist ekki að breyta fundargerðum. Þá vekur það athygli umboðsmanns að daginn eftir að umræddur afgreiðslufundur fór fram, svo og nokkrum dögum síðar, er í samskiptum milli starfsmanna vísað til fyrstu draga eða draga að þeirri umsögn skipulagsfulltrúa sem átti að hafa verið samþykkt. Ekki liggi fyrir nein skrifleg samskipti um gerð umsagnarinnar fyrr en eftir afgreiðslufundinn. Umboðsmaður spyr af því tilefni borgina hvort gripið hafi verið eða grípa eigi til aðgerða vegna vísana starfsmanna til rangrar lýsingar á atvikum máls. Auk þess segir umboðsmaður að við meðferð óskylds kvörtunarmáls hafi hann hnotið um fundargerð fundar starfsmanna umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar og aðila viðkomandi stjórnsýslumáls, þar sem segir að starfsmaður borgarinnar hafi gert grein fyrir því að alvanalegt væri að fundargerðum skipulagsfulltrúa væri breytt með því að afmá umfjallanir úr fundargerð. Vegna þessa óskar umboðsmaður eftir því að borgin lýsi afstöðu sinni til þess sem fram kom í fundargerðinni og hvernig það samrýmist upplýsingum borgarinnar til umboðsmanns um að almennt tíðkist ekki að fundargerðum sé breytt. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hálka á flestum leiðum á höfuðborgarsvæðinu Askja sýnir Honda ZR-V „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Dómur yfir Steinu staðfestur í Landsrétti Útséð um að vaxtalækkunarferli haldi áfram Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Síðustu vélarnar í loftið í nótt Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Dóra fékk ekki sæti á listanum Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Fyrsta þyrluskoðun sinnar tegundar Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Hálka á flestum leiðum á höfuðborgarsvæðinu Askja sýnir Honda ZR-V „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kosningum flýtt í Danmörku Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Síðustu vélarnar í loftið í nótt Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Dóra fékk ekki sæti á listanum Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Fyrsta þyrluskoðun sinnar tegundar Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál