Hlutabréf laxeldisfélagsins Kaldvíkur hafa lækkað verulega á First North-vaxtarmarkaðinum á Íslandi í dag. Hlutabréfaverð félagsins er komið niður í 63 krónur á hlut, sem jafngildir um 28% lækkun á einum degi. Viðskiptin voru þó afar rýr en gengið hefur lækkað í tveimur viðskiptum með 6.700 hluti, sem dregur fram hversu lítið flotið er hér heima. Á sama tíma lækkaði hlutabréfaverðið einnig í Noregi á Euronext Growth í Osló, þar sem síðasta viðskiptaverð var um 4,56 norskar krónur, sem jafngildir um 10% lækkun frá síðasta dagslokagengi. Þar var viðskiptavirkni meiri með hlutabréf félagsins en í Osló var lækkunin ekki jafn öfgakennd í prósentum og hér heima. Kjarni viðbragðanna virðist þó tengjast kauphallartilkynningu félagsins frá því á miðvikudag, þar sem félagið staðfestir að það hafi óskað eftir undanþágu frá ákveðnum skilmálum lánasamninga og að niðurstöðu sé vænst innan fyrsta ársfjórðungs. Þegar félag fer formlega í slíkt ferli lesa fjárfestar það gjarnan sem merki um aukna fjárhagslega spennu, jafnvel þó að viðræðurnar gangi „samkvæmt áætlun“. Slík undanþága er í grunninn beiðni til lánveitenda um að slaka tímabundið á lánakvöðum eða breyta mælikvörðum, svo félagið teljist ekki brjóta samninga ef rekstrartölur eða lykilhlutföll þróast verr en gert var ráð fyrir. Félagið upplýsti jafnframt að slátrað hafi verið 7.943 tonnum á fjórða ársfjórðungi og samtals 17.105 tonnum á árinu 2025. Í kynningunni er farið nánar yfir að áskoranir tengdar svokallaðri G24-kynslóð hafi leitt til snemmbærrar slátrunar. Þar er lýst að sár hafi byrjað að myndast á vaxtartímabili þegar hitastig hækkaði og það hafi leitt til snemmbærrar slátrunar. Kaldvík hafði áður, í lok janúar, varað við því að frá því uppgjör þriðja ársfjórðungs var kynnt í nóvember hefðu ýmsir þættir haft neikvæð áhrif á horfur fyrir fyrsta ársfjórðung 2026, meðal annars snemmbær slátrun og verðþróun á mörkuðum, og að hætta gæti verið á að félagið uppfyllti ekki allar lánakvaðir. Dagslækkunin virðist þó einkum vera bein viðbrögð við því að félagið staðfesti nú formlega í uppfærslunni að beðið sé um undanþágu frá bankaskilmálum og að niðurstöðu sé vænst innan skamms. Sjá einnig Afkomuviðvörun frá Kaldvík og gengið sígur