Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sækja allt að 1,1 milljarð og fara á markað í Svíþjóð

Read Full Article →

Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir áforma að sækja allt að 8 milljónir evra, eða rúmlega 1,1 milljarð króna í nýtt hlutafé á öðrum ársfjórðungi 2026. Jafnframt stefnir, félagið sem er skráð á íslenska First North-markaðinn, að fara á markað í Svíþjóð á seinni hluta ársins 2026. Í tilkynningu er hlutafjáraukningin sögð lykilþáttur í vaxtaráætlunum Klappa, bæði hvað varðar innri og ytri vöxt. Í tengslum við fyrirhugaða hlutafjáraukningu á Íslandi og skráningu Klappa í Svíþjóð hefur félagið gert samninga við Fossa fjárfestingabanka hf. sem umsjónaraðila og söluráðgjafa á Íslandi og Bergs Securities AB sem vottaðan ráðgjafa í Svíþjóð. Sjá einnig Klappir huga að tvíhliða skráningu „Með skráningunni í Svíþjóð styrkir Klappir aðgengi sitt að alþjóðlegum fjármálamörkuðum, eykur fjölbreytni í fjármögnunarleiðum og stuðlar að uppbyggingu virks og öflugs markaðar fyrir hlutabréf félagsins. Þessi skref marka mikilvæga áfanga í alþjóðlegri uppbyggingu Klappa og leggja traustan grunn að áframhaldandi vexti og verðmætasköpun félagsins til langs tíma,“ segir í tilkynningu. „Við erum mjög ánægð með samstarfið við Fossa og treystum á víðtæka reynslu þeirra á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.Við erum virkilega ánægð með að vinna með Bergs Securities í þessu mikilvæga skrefi. Þekking þeirra á Nasdaq First North markaðnum í Svíþjóð, sem er leiðandi markaður fyrir vaxtarfyrirtæki í Evrópu, mun skipta sköpum í áframhaldandi vaxtarferð Klappa,“ segir Þorsteinn Svanur Jónsson , forstjóri Klappa. Sjá einnig Forstjóraskipti hjá Klöppum Samkvæmt samningnum munu Fossar leiða undirbúning og framkvæmd hlutafjárútboðs Klappa á Íslandi. „Klappir eru fyrirtæki með skýra framtíðarsýn og sterka stöðu á vaxandi markaði fyrir gagnadrifnar lausnir í auðlindastýringu og sjálfbærni. Við hlökkum til að styðja félagið í þessum mikilvæga áfanga og leiðbeina því í gegnum fyrirhugað hlutafjárútboð,“ segir Ástrós Björk Viðarsdóttir , verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf hjá Fossum. Bergs Securities AB er sænskt fjármálafyrirtæki með aðsetur í Stokkhólmi sem sérhæfir sig í ráðgjöf við vaxtarfyrirtæki og skráningar á Nasdaq First North markaðnum. Sem vottaður ráðgjafi mun Bergs Securities leiða Klappir í gegnum skráningarferlið, þar á meðal undirbúning og innsendingu skráningargagna, samskipti við Nasdaq Stockholm og ráðgjöf um reglufylgni og upplýsingagjöf sem skráð félag. „Klappir starfar á vaxandi markaði sem drifin er áfram af aukinni áherslu, á heimsvísu, á sjálfbærni og auðlindastjórnun," segir Rutger Ahlerup , yfirmaður ráðgjafar hjá Bergs Securities. „Við hlökkum til að styðja félagið í skráningarferlinu og framtíðarþróun þess sem skráðs hlutafélags."

Share this article