Héraðsdómur í Lyngby dæmdi í dag viðskiptamann á áttræðisaldri til átta mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir þátttöku í hluta af stórfelldu fjárfestingasvindli sem tengist veðmálaklúbbnum Optimizer. Málinu hefur verið lýst sem stærsta fjárfestingasvindli gegn einkaaðilum í Danmörku hingað til. Alls lögðu 875 fjárfestar samtals um 900 milljónir danskra króna, rúmlega 17 milljarða íslenskra króna, inn í „fjárfestinguna“ en þegar kerfið hrundi vantaði um 390 milljónir danskra króna. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa, í hlutverki sínu sem „klúbbstjóri“ hjá Optimizer, látið hjá líða að grípa inn í þegar fimm félagar stóðu í því að leggja inn nýtt fé. Dómurinn taldi sannað að hann hefði þá haft nægilega skýra vitneskju um að innborganirnar væru í verulegri hættu, þar sem formaður félagsins var þegar farinn að misnota fé fjárfesta. Sakfellingin byggir þannig ekki á því að hann hafi sjálfur skipulagt svikin, heldur að hann hafi með aðgerðarleysi sínu — þ.e. með því að vara ekki við og stöðva ekki innborganir sem hann kom að — stuðlað að því að fimm aðilar töpuðu samtals um 4,6 milljónum danskra króna. Dómurinn var átta mánaða fangelsi, en skilorðsbundinn, með því skilyrði að hann leysi af hendi 150 klukkustunda samfélagsþjónustu Ákæruvaldið krafðist þriggja ára fangelsis Ákæruvaldið hafði krafist þess að viðskiptamaðurinn yrði dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi en dómurinn féllst aðeins á lítinn hluta ákærunnar. Verjandi hans, Poul Hauch Fenger, tilkynnti í kjölfar dómsins að málinu yrði áfrýjað til Landsréttar og sagði að skjólstæðingur sinn hefði verið sýknaður af „95 prósentum“ ákæruliða og að niðurstaðan væri gjörólík því sem ákæruvaldið hefði haldið fram. Maðurinn hefur á meðan málið var rekið haldið fram sakleysi sínu og lýst sér sem fórnarlambi í málinu. Hann sagði í upphafi réttarhaldanna að fjölskylda hans hefði tapað um 20 milljónum danskra króna en í málinu kom fram af hálfu ákæruvalds að raunverulegt nettótap hefði verið minna þar sem hann og fjölskyldumeðlimir hefðu fengið greiddar „ávöxtunargreiðslur“ fram að hruni kerfisins. Í skriflegri yfirlýsingu eftir dóminn sagði hann að hann væri „fyrsti maður í heiminum til að vera dæmdur fyrir að stela af sjálfum sér“. „Klassískt pýramídasvindl“ Fjárfestarnir töldu sig vera að leggja fé í kerfi sem átti að byggja á veðmálum á íþróttaviðburði og að „ávöxtunin“ kæmi í reynd gegnum veðmál á vefsíðu Betfair og væri ávöxtunin því skattfrjáls. Í reynd var féð hins vegar ekki sett í veðmál á þann hátt sem haldið var fram. Að sögn ákæruvalds var hluti innborgana notaður til að greiða öðrum félögum út sem meinta ávöxtun, í anda þess sem jafnan er lýst sem pýramídavindli. Optimizer starfaði frá árinu 2011 þar til lögregla gerði húsleitir og handtökur í janúar 2024. Aðalgerandinn í málinu, Christian Hansen (áður Christian Machholdt Østergaard), játaði í sérstöku máli í desember 2024 svik upp á 928 milljónir danskra króna gegn 875 þolendum og var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi. Hinn aldraði viðskiptamaður var ákærður fyrir að hafa tekið þátt í svikum upp á 102,6 milljónir króna gegn 255 þolendum á tímabilinu frá febrúar 2023 til janúar 2024. Ákæran laut meðal annars að því að hann hefði ekki brugðist við þegar hann fékk upplýsingar um að formaðurinn hefði varið fé fjárfesta í ósamþykktar fjárfestingar, meðal annars í eðalmálma og fágæta steina. Dómurinn lagði hins vegar til grundvallar að það hefði ekki verið fyrr en 6. október 2023 að vitneskja viðskiptamannsins um misnotkun fjármuna hefði verið nægilega skýr til þess að hann bæri ábyrgð á því að viðvaranir hefðu átt að koma fram. Dómurinn taldi að fyrri grunur, sem hann hefði kannað, gerði hann ekki sjálfkrafa að samverknaðarmanni – en að hann bæri ábyrgð í þeim tilvikum þar sem hann hefði aðstoðað við að afla nýrra innborgana eftir að vitneskjan var orðin skýr. Bankar vöruðu við og skrúfuðu fyrir Í málinu kom jafnframt fram að bankar hefðu ítrekað sent tilkynningar til peningaþvættisskrifstofu Dana um að Optimizer gæti verið pýramídakerfi. Reksturinn lenti svo í verulegum lausafjárvanda þegar Nykredit stöðvaði viðskiptavini frá því að senda eða taka við greiðslum tengdum Optimizer haustið 2023. Í dómsmálinu voru einnig rakin fölsuð gögn frá Betfair sem áttu að sýna háar inneignir á veðmálareikningi en reyndust uppspuni. Betfair hafði jafnframt varað við því að fyrirkomulagið liti út eins og Ponzi-kerfi og viðskiptamaðurinn var gagnrýndur fyrir að hafa ekki brugðist við þeim viðvörunum heldur haldið áfram að koma að því að afla nýrra innborgana.