- What: International fishing safety treaty takes effect in 2027
- Impact: Affects thousands of fishing vessels globally
Skilyrði gildistöku Höfðaborgarsamþykktarinnar um öryggi fiskiskipa (e. Cape Town Agreement) hafa verið uppfyllt og mun hún taka formlega gildi í febrúar 2027. Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) stendur að samþykktinni en höfuðmarkmið hennar er að fækka slysum á sjó með því að samræma kröfur og bæta vinnuskilyrði sjómanna. Samþykktin felur í sér bindandi öryggisstaðla fyrir fiskiskip, lengri en 24 metrar, en um 45 þúsund skip falla þar undir á heimsvísu. Samkvæmt gildistökuákvæði samþykktarinnar tekur hún gildi tólf mánuðum eftir að minnst 22 ríki fullgilda hana og tilkynna um að lágmarki 3.600 fiskiskip. Argentína gerðist aðili að samþykktinni í lok febrúar sl. og þar með voru skilyrði fyrir gildstöku uppfyllt. Aðildarríki eru nú 28 og tilkynnt fiskiskip 3.754 talsins. Samþykktin mun því taka gildi í febrúar 2027. Ísland einn af stofnaðilum Ísland er einn af stofnaðilum Höfuðborgarsamþykktarinnar frá árinu 2013. Frá þeim tíma hefur Ísland stuðlað að framgangi og gildistöku samþykktarinnar. Eftirtektarverður árangur hefur náðst hér á landi varðandi öryggi sjómanna og litið hefur verið til landsins sem fyrirmyndar á þessu sviði, að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins. Þarf að fella inn í landslög Helstu markmið Höfðaborgarsamþykktarinnar er að fækka slysum á sjó, bæta vinnuskilyrði sjómanna, efla umhverfisvernd á hafi og auka samkeppnishæfni þar sem útgerðir, hvar í heiminum sem þær stunda fiskveiðar, munu þurfa að uppfylla sambærilegar kröfur. Þess er vænst að samþykktin dragi einnig úr ólögmætum, ótilkynntum og stjórnlausum fiskveiðum (IUU fishing) og minnki áhættu fyrir þau sem sinna leitar- og björgunarstörfum á sjó. Einnig megi draga úr plastmengun í hafi sem stafi af veiðarfærum sem áhafnir skipa losi sig við. Þegar samþykktin hefur tekið gildi á heimsvísu þurfa aðildarríki að fella ákvæði hennar inn í landslög og framfylgja þeim. Fánaríki eiga að tryggja að skip sem fljúga flaggi þeirra fylgi kröfum hennar og hafnarríki eiga rétt á að skoða erlend skip í höfnum sínum til að staðfesta að þau hlíti kröfum samþykktarinnar. Kröfurnar ná yfir hönnun, smíði, búnað, skoðanir, stöðugleika, björgunarbúnað og vélbúnað fiskiskipanna svo eitthvað sé nefnt.