Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudaginn viljayfirlýsingu um bann við útbreiðslu jarðefnaeldsneytis. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir að stuðningur við alþjóðlega framtakið Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty (FFNPT) sé í samræmi við loftslagsmarkmið Reykjavíkur, þar á meðal markmið um kolefnishlutleysi árið 2030. „Reykjavík er reiðubúin til samstarfs við aðrar borgir um heim allan og hvetur þjóðríki, þar á meðal ríkisstjórn Íslands, til að taka virkan þátt í alþjóðlegum viðræðum um samning um afnám jarðefnaeldsneytis og leggja sitt af mörkum til að móta sanngjarna og hnattræna umbreytingu frá jarðefnaeldsneyti,“ segir í yfirlýsingu Heiðu Bjargar. Hún segir FFNPT byggja á þeirri staðreynd að til að takast á við loftslagsvandann dugi ekki aðeins að draga úr losun, heldur þurfi einnig að takmarka sjálfa framleiðslu jarðefnaeldsneytis. Markmiðið framtaksins sé að styrkja Loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamninginn með því að takast sérstaklega á við framboðshlið loftslagsvandans. Í greinargerð borgarstjóra segir að framtakið sé leitt af 18 ríkjum og njóti stuðnings yfir 800 þingmanna, 146 borga, stofnana eins og Evrópusambandsins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), og yfir 4.200 samfélagshópa, fyrirtækja og samtaka um allan heim. Einar bendir á afstöðu Jóhanns Páls Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, bendir í bókun á á að í yfirlýsingunni sé lagst gegn „new fossil fuel expansion“ og segir það áhugavert því ekki séu uppi áform innan borgarmarkanna um olíuleit. „Framsókn telur það ekki verkefni Reykjavíkurborgar að taka afstöðu gegn olíuleit kjósi íslensk stjórnvöld að taka ákvörðun um slík verkefni. Framsókn bendir á að Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Samfylkingar hefur sagst jákvæður gagnvart olíuleit. Framsókn situr því hjá við afgreiðslu málsins,“ segir í bókun Einars. Sjá einnig Von á úttekt um olíuleit