Viðskipti | mbl | 3.3.2026 | 16:03 Virkjun á stærð við Kárahnjúkavirkjun Eftirspurn eftir orku á Grænlandi er takmörkuð. mbl.is/RAX Setja bókamerki Landsvirkjun skoðar nú stórt vatnsaflsverkefni á Grænlandi sem er sambærilegt að stærð og Kárahnjúkavirkjun, stærsta virkjun á Íslandi. „Þar þarf að hugsa verkefnið með nýjum orkukaupanda,“ segir Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, í samtali í ársskýrslu Landsvirkjunar sem birt er á vef fyrirtækisins og bætir við að eftirspurn eftir orku á Grænlandi sé takmörkuð. Þá segir hann að á Nýfundnalandi í Kanada sé vindorkuverkefni komið lengra. „Það er sambærilegt Vaðöldu að stærð,“ segir hann á vefsíðunni. Auk þess er að hans sögn verið er að skoða smærri vatnsaflsverkefni á sama svæði. Þekkja aðstæður Í samtalinu segir að erlend verkefni Landsvirkjunar beinist fyrst og fremst að vatnsafli og jarðvarma á norðurslóðum. „Við leggjum áherslu á svæði þar sem við þekkjum aðstæður vel,“ segir Kristján. Kristján Guðmundsson forstöðumaður erlendra verkefna Landsvirkjunar. Þar nefnir hann sérstaklega Grænland og Kanada, þar sem Landsvirkjun hafi byggt upp tengsl og samstarf yfir langan tíma. „Það tekur langan tíma að byggja upp sambönd á nýjum mörkuðum, en þau skipta sköpum,“ segir hann. Þríþættur tilgangur Um tilgang erlendu starfseminnar segir Kristján á vefnum hann vera þríþættan. Fyrsti þátturinn tengist loftslagsmálum þar sem framtíðarsýn Landsvirkjunar sé sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku. Með þátttöku í verkefnum erlendis vilji fyrirtækið leggja sitt af mörkum til orkuskipta, líkt og heima á Íslandi. Annar þátturinn er verðmætasköpun að sögn Kristjáns. Það snýst um að styrkja arðgreiðslugetu Landsvirkjunar til framtíðar. Þriðji þátturinn er áhættudreifing. „Það er ákveðin áhætta í því að allir virkjunarkostir séu háðir sömu ytri aðstæðum,“ segir hann í samtalinu og bendir á að verkefni í ólíkum löndum lúti mismunandi lögmálum. Þá hafi starfsemin einnig jákvæð áhrif á fyrirtækið sjálft. „Hún gerir Landsvirkjun að alþjóðlegri og spennandi vinnustað,“ segir Kristján einnig á vef Landsvirkjunar. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lögmæti og fólk í hlekkjum harðstjóranna Sigurður Már Jónsson Breytingar eða framfarir? Fleira áhugavert Beint: Átökin í Mið-Austurlöndum breiðast út Þak sendiráðsins hrunið að hluta Flytja heim þúsundir strandaglópa Búið að tendra í púðurtunnu Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Beint: Ársfundur Landsvirkjunar Knútur nýr ráðgjafi hjá Syndis S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun 75% virkjuðu viðbragðsáætlun Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Hagnaður Nova 239 milljónir á fjórða ársfjórðungi Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Fréttaskýring: Stríðskostnaður og stríðsgróði Hagnaður Nova 239 milljónir á fjórða ársfjórðungi Cabin kaupir Hótel Laka Icewear Garn opnar í Kringlunni Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Lækka verð á offitulyfjum Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar 21 milljarðs gjaldþrot Play Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Cabin kaupir Hótel Laka Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 2,7 milljarðar króna á dag Advania kaupir Evolv Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lögmæti og fólk í hlekkjum harðstjóranna Sigurður Már Jónsson Breytingar eða framfarir? Fleira áhugavert Búið að tendra í púðurtunnu Flytja heim þúsundir strandaglópa Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Beint: Átökin í Mið-Austurlöndum breiðast út Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Beint: Ársfundur Landsvirkjunar Knútur nýr ráðgjafi hjá Syndis S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun 75% virkjuðu viðbragðsáætlun Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Hagnaður Nova 239 milljónir á fjórða ársfjórðungi Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Fréttaskýring: Stríðskostnaður og stríðsgróði Hagnaður Nova 239 milljónir á fjórða ársfjórðungi Cabin kaupir Hótel Laka Icewear Garn opnar í Kringlunni Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Lækka verð á offitulyfjum Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar 21 milljarðs gjaldþrot Play Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Cabin kaupir Hótel Laka Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 2,7 milljarðar króna á dag Advania kaupir Evolv Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand