Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hjalti orðinn stærsti einka­fjár­festirinn í Festi

Read Full Article →

HIBB Holding ehf., eignar­halds­félag Hjalta Baldurs­sonar, er komið á lista yfir stærstu hlut­hafa Festi hf. með 1,04% hlut. Sam­kvæmt upp­færðum hlut­haf­alista á félagið 3.262.216 hluti í Festi sem gerir Hjalta að stærsta einka­fjár­festi í Festi. Miðað við dagsloka­gengi Festis í dag, 330 krónur, nemur markaðsvirði hlutarins um 1,1 milljarði króna. Hjalti er fyrrverandi forstjóri og stofnandi Bókunar, íslensks hugbúnaðarfyrirtækis í ferðaþjónustu, sem var selt til TripAdvisor árið 2018 fyrir um 23 milljónir bandaríkjadala. Sjá einnig TripAdvisor kaupir Bókun ehf. HIBB Holding var áður skráður hlut­hafi Heim­kaups, sem til­heyrir í dag Sam­kaupum og Dröngum. Live áfram stærsti hluthafi Festis Stærstu hlut­hafar Festist eru áfram líf­eyris­sjóðir landsins en sam­kvæmt upp­færðum lista er Líf­eyris­sjóður verzlunar­manna stærstur með 15,32% hlut, á eftir kemur LSR – Líf­eyris­sjóður starfs­manna ríkisins með 12,01%, Brú líf­eyris­sjóður með 10,35%, Gildi líf­eyris­sjóður með 9,74% og Al­menni – Líf­eyris­sjóður með 6,88%. Aðrir stórir eig­endur á listanum eru meðal annars Stapi líf­eyris­sjóður (4,62%), Birta líf­eyris­sjóður (3,92%), Vangu­ard (3,87%) og Frjálsi líf­eyris­sjóður (3,44%), auk Söfnunar­sjóðs líf­eyris­réttinda (2,76%), Festu líf­eyris­sjóðs (2,11%) og Lands­bréfa hf. (1,90%).

Share this article