Festi hagnaðist um 218 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi ársins, samanborið við 279 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Smásölufyrirtækið birti árshlutauppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Rekstur félagsins var í takt við áætlanir stjórnenda. Vörusala nam 40,1 milljarði króna og jókst um 6% milli ára. Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 9,7 milljörðum króna og jókst um 5,8% á sama tíma. EBITDA nam 2,6 milljörðum króna á fjórðungnum og hækkaði um 3% frá fyrra ári. Framlegðarstig nam 24,3% og lækkaði um 0,1 prósentustig milli ára. „Rekstur félagsins gekk vel á ársfjórðungnum og var í takt við áætlanir stjórnenda. Heildartekjur jukust um 6,0% milli ára og jókst sala í flestum vöruflokkum í magni milli ára,“ segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi. Fjöldi afgreiðslna jókst um 1,4%, fjöldi seldra vara um 5,8% og fjöldi seldra eldsneytislítra um 18,5%, mest í sölu til stórnotenda. Þá fjölgaði afgreiðslum í gegnum stafræna miðla um 13,3% milli ára. Krónan stærsti tekju- og hagnaðarliðurinn Krónan var stærsta rekstrareining Festi á fjórðungnum. Tekjur Krónunnar námu 20,5 milljörðum króna og EBITDA 1,6 milljörðum króna. Hagnaður Krónunnar nam 711 milljónum króna á tímabilinu, samanborið við 490 milljónir króna á sama tíma í fyrra. ELKO skilaði 107 milljóna króna hagnaði, samanborið við 33 milljónir króna í fyrra. Tekjur ELKO námu 4,7 milljörðum króna og EBITDA 351 milljón króna. Lyfja skilaði 28 milljóna króna hagnaði, sem var lítillega minna en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam 31 milljón króna. Tekjur Lyfju námu 5,2 milljörðum króna. N1 var hins vegar rekið með 403 milljóna króna tapi á fjórðungnum, samanborið við 102 milljóna króna tap á sama tíma í fyrra. Tekjur N1 námu 10,8 milljörðum króna en EBITDA lækkaði úr 760 milljónum króna í 444 milljónir króna milli ára. Í tilkynningu félagsins segir að N1 sé þó í sókn, þrátt fyrir að framlegð hafi lækkað á fjórðungnum. Afgreiðslufjöldi hafi aukist um 16% milli ára og fjöldi nýrra eldsneytisviðskiptavina tvöfaldast. N1 appið hafi einnig laðað að fleiri viðskiptavini og mars hafi verið metmánuður í seldum lítrum í gegnum appið. Laun og aðföng hækka Laun og annar starfsmannakostnaður námu 5,7 milljörðum króna á fjórðungnum, samanborið við 5,3 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Annar rekstrarkostnaður nam 2,1 milljarði króna og hækkaði um 90 milljónir króna milli ára. „Líkt og víðar í hagkerfinu hefur launakostnaður og verð á aðföngum hækkað, en markvissar aðgerðir hafa að mestu vegið upp á móti þeim áhrifum,“ segir Ásta. Hún segir fjárfestingar í stafrænum lausnum og gagnadrifinni ákvarðanatöku áfram skila aukinni skilvirkni. „Notkun gervigreindar og sjálfvirknivæðingar í lykilþáttum rekstrarins hefur þegar haft jákvæð áhrif, þótt enn séu mörg tækifæri til frekari framþróunar,“ segir Ásta. Fyrsta skuldabréfaútgáfa félagsins Vaxtaberandi skuldir voru endurfjármagnaðar á fjórðungnum fyrir um 4,2 milljarða króna. Festi lauk sölu á nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki að nafnvirði 4,2 milljarðar króna á 3,95% ávöxtunarkröfu. Um var að ræða fyrstu skuldabréfaútgáfu félagsins. Félagið greiddi einnig 297 milljónir króna inn á önnur lán og keypti eigin bréf fyrir 563 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 32 milljónir króna, en félagið segir einskiptisáhrif í rekstrartengdum eignum og skuldum skýra muninn milli ára. Eigið fé Festi nam 45 milljörðum króna í lok mars og eiginfjárhlutfallið var 38,7%, samanborið við 41,2% í lok síðasta árs. Félagið samþykkti arðgreiðslu upp á 2,2 milljarða króna í mars, sem var greidd til hluthafa 9. apríl. Horfur óbreyttar EBITDA-spá Festi fyrir árið 2026 er óbreytt og hljóðar upp á 16,5 til 17 milljarða króna. Ásta segir horfur ársins góðar þrátt fyrir óvissu í efnahagsmálum, hækkandi verðbólguspár og spennu í Mið-Austurlöndum. „Fram undan eru sumarmánuðirnir sem jafnan eru umsvifamestir í rekstri samstæðunnar. Áfram verður leitað leiða til að sporna gegn hækkun vöruverðs – og þar með verðbólgu – með bættum rekstri og lægra einingarverði,“ segir Ásta.