Stjórnvöld á Grænlandi hafa undirritað samning við Kanada um umfangsmikla fjárfestingu í námuvinnslu og orkumálum. Kanadíska ríkisstjórnin hefur undirritað viljayfirlýsingu um fjárfestingu að jafnvirði 4,4 milljarða króna í námufyrirtækinu Greenland Resources. KNR greinir frá þessu og vitnar til viðskiptavefjarins Businesswire. Fjárfestingunni skal eingöngu verja til þess verkefnis og féð verður aðeins greitt út ef grænlenska heimastjórnin veitir fyrirtækinu öll nauðsynleg leyfi. Greenland Resources fékk rannsóknarleyfi í fyrrasumar til að leita að verðmætum málmum í fjallinu Piiaffik, meðal annars mólýbdeni og magnesíni sem notað er við hergagnaframleiðslu. Heimsins umfangsmesta jarðefnaráðstefna stendur yfir í Toronto þessa dagana og þar er Naaja Nathanielsen, auðlinda- og iðnaðarráðherra Grænlands, meðal þátttakenda. Hún undirritaði á mánudag samning við kanadískan kollega sinn, Tim Hodgson, um aukna samvinnu í orkumálum og við hráefnavinnslu úr jörðu á grundvelli fjölþjóðaáætlunar Kanadamanna um slíka starfsemi. Samkvæmt fréttatilkynningu landstjórnarinnar leggja Kanadamenn til tækniþekkingu og fjármagn auk aðgangs að háþróuðu tengslaneti og Grænlendingar kunnáttu í orkunýtingu á norðlægum slóðum. Nathanielsen kveðst vonast til að samningurinn glæði efnahagslíf Grænlands verulega.