Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech, segir alþjóðlega viðskiptaumhverfið að verða sífellt flóknara. Hagsmunir í viðskipta-, öryggis- og efnahagsmálum fléttist meira saman og jafnt minni sem stærri hagkerfi finni óhjákvæmilega fyrir slíkum breytingum. Við þessar aðstæður sé lykilatriði fyrir Ísland að hafa skýra sýn á eigin hagsmuni. „Við erum lítið og opið hagkerfi sem byggir á alþjóðlegu samstarfi, traustum viðskiptasamböndum og stöðugu regluverki. Í því samhengi er mikilvægt að viðhalda sterkum tengslum beggja vegna Atlantshafsins og raunar ættum við almennt að hafa tengsl okkar við ríki um allan heim í huga. Ísland hefur lengi notið þess að vera talið trúverðugt samstarfsríki með stöðuga stefnu. Í óvissari heimi verður slíkt orðspor verðmætara en áður.“ Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift