- What: EU official comments on Iceland's EU negotiations
- Impact: Icelandic citizens
„Mikilvæg ákvörðun bíður íslensku þjóðarinnar,“ segir í yfirlýsingu sem Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins sendi frá sér í tilefni þess að tilkynnt var í dag um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður. Kos segir í yfirlýsingunni að ástand heimsmála sé í grundvallaratriðum öðruvísi en þegar Ísland sótti um aðild árið 2009, og hún tekur fram að aðildarsamningar við umsóknarríki taki mið af þeim raunveruleika sem viðkomandi ríki búi við. „Ísland er nú þegar sterkt og mikilvægt samstarfsríki og hluti af innri markaðnum. Forgangsmál Íslands eru vel þekkt og í heimi þar sem valdablokkir takast á, býður aðild að Evrópusambandinu upp á akkeri í bandalagi sem byggist á gildum, velsæld og öryggi. Samningar um aðild að Evrópsambandinu eru sértækir fyrir hvert og eitt ríki, og við tökum mið af þeim raunveruleika sem umsóknarríki búa við,“ segir í yfirlýsingu Kos. Yfirlýsingin á ensku: “A significant decision lies ahead for the Icelandic people.” “The geopolitical context is fundamentally different today than when Iceland first applied for membership” “Iceland is already a strong and strategic partner. They are also part of our internal market.” “Iceland’s priorities are well known. In a world of competing spheres of influence, EU membership offers an anchor into a bloc grounded in values, prosperity and security." “Negotiations on EU membership are specific to each country and we take the candidate countries' realities into account.”