Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ekki víst að gagna­vera­iðnaðurinn haldi áfram að vaxa

Read Full Article →

Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, segir ekki á vísan að róa með að gagnaversiðnaðurinn á Íslandi muni halda áfram að vaxa í framtíðinni. „Augljósa vandamálið er að orkuframleiðsla hefur ekki aukist að neinu ráði í langan tíma. Raforkumarkaðurinn á Íslandi er að vissu leyti vanþróaður þegar horft er til hvernig hann er uppbyggður. Hann hefur að miklu leyti verið byggður upp í kringum þarfir stóriðjunnar og hentar þörfum gagnavera illa. Ef ætlunin er að stuðla að aukinni uppbyggingu gagnavera hér á landi þarf að auka raforkuframleiðslu og bæta nettengingar til Evrópu enn frekar, auk þess sem raforkumarkaðurinn þarf að laga sig að þörfum gagnavera.“ Skattaframkvæmd steinn í götu gagnavera Þessu til viðbótar nefnir Eyjólfur skattalöggjöfina og framfylgd hennar hér á landi sem stóra hindrun í vegi frekari uppbyggingu gagnavera. „Það sem er fyrst og fremst að letja erlenda aðila frá því að reisa gagnaver eða eiga í viðskiptum við gagnaver á Íslandi er að þegar tölvubúnaður er fluttur til landsins þarf að greiða virðisaukaskatt af honum strax og treysta svo á að hann verði endurgreiddur, þó hugsanlega sé hægt að komast hjá því í einhverjum tilfellum ef allt gengur upp. Þegar verið er að flytja inn búnað fyrir tugi eða hundruð milljarða liggur í augum uppi að það er verulega íþyngjandi fyrir erlenda viðskiptavini gagnavera að þurfa að borga 24% virðisaukaskatt af verðmæti hans. Ekki nóg með að þurfa að fjármagna skattgreiðsluna þá þurfa fyrirtækin einnig að sætta sig við að Skatturinn getur tekið sér margar vikur eða mánuði í að endurgreiða virðisaukaskattinn, eða jafnvel látið á það reyna hvort það þurfi yfir höfuð að endurgreiða hann. Hver er til í að taka þessa áhættu?“ Þessi framkvæmd tíðkist hvergi annars staðar í löndunum sem við viljum bera okkur saman við. „Hin Norðurlöndin, að Noregi frátöldu, eru öll í ESB þar sem er eitt sameiginlegt virðisaukaskattskerfi og þau eru því ekki að glíma við þetta sama vandamál. Norðmenn hafa síðan tekið upp kerfi sem tekur á þessu og þá stendur Ísland eitt eftir með þessa bagalegu viðskiptahindrun. Hérna verður löggjafinn að stíga inn og tryggja að umgjörðin sé með því besta sem þekkist og eyða allri óvissu varðandi skattamál gagnavera og viðskiptavina þeirra. Skatturinn vinnur bara eftir þeim lögum sem gildandi eru.“ Aðspurður kveðst Eyjólfur nokkuð vongóður um að fundin verði lausn á fyrrgreindum vandamálum, enda upplifi hann til að mynda velvild frá ríkisstjórninni í garð gagnavera. „Ég fagna til dæmis því hve ákveðinn Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er í að ráðast í aukna orkuöflun. En það er ljóst að við þurfum að taka okkur á til að láta þessi tækifæri ekki okkur úr greipum ganga.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .

Share this article