Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Viðskiptahalli við útlönd langt umfram spár

Read Full Article →

Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra samkvæmt greiningu Landsbankans en í henni segir að erlend staða þjóðarbúsins hafi versnaði á síðasta ári en var þó engu að síður mjög sterk að mati bankans. Á fjórða ársfjórðungi mældist 38 ma.kr. halli af viðskiptum við útlönd samkvæmt tölum sem Seðlabankinn birti fyrir helgi. „Ársfjórðungurinn kom talsvert betur út en sami ársfjórðungur árið áður þegar 86 ma.kr. halli mældist. Verulegur halli var á vöruskiptajöfnuði og smávegis halli á rekstrarframlögum en á móti var afgangur af þjónustuviðskiptum. Jöfnuður frumþáttatekna var nokkurn veginn á núlli á ársfjórðungnum,“ segir í greiningu. Fyrir árið í heild var hallinn 178 ma.kr. sem var talsvert verri niðurstaða en búist var við. Í síðustu hagspá Landsbankans frá því í október í fyrra var gert ráð fyrir 93 ma.kr. halla. Sú spá var að vísu birt örfáum dögum fyrir bilunina í kerum Norðuráls á Grundartanga. Sjá einnig Vöruviðskipti óhagstæð um tíu milljarða „Líkt og raunin hefur verið síðasta áratuginn var verulegur halli á vöruviðskiptum en afgangur af þjónustuviðskiptum í fyrra. Mikil uppbygging gagnavera á árinu hafði töluverð áhrif á allar tölur um viðskipti við útlönd, enda mjög stórar fjárfestingar með tilheyrandi innflutningi á tölvubúnaði. Hallinn á vöruviðskiptum var því meiri en ella en á móti mældist mikil fjárfesting. Sú fjárfesting skilaði strax á lokafjórðungi ársins auknum þjónustutekjum sem komu til hækkunar á þjónustujöfnuði.“

Share this article