Hótelsamstæðan Berjaya Hotels Iceland hf., sem hét áður Icelandair Hotels, tapaði 985 milljónum króna á síðasta fjárhagsári sem náði frá 1. júlí 2024 til 30. júní 2025. Til samanburðar tapaði samstæðan 1.636 milljónum á reikningsárinu 2023-2024. Veittu félaginu yfir 1,8 milljarða víkjandi lán Eigið fé samstæðunnar var jákvætt um 149 milljónir króna í lok júní 2025. Til samanburðar var eigið fé samstæðunnar neikvætt um 753 milljónir króna í lok júní 2024. Það jafngildir ríflega 900 milljóna króna jákvæðum viðsnúningi. Það má rekja til þess að eigendur samstæðunnar veittu hótelfélaginu víkjandi lán að fjárhæð 1.865 milljónir króna á síðasta fjárhagsári. Víkjandi lán frá eigendum, sem fellur undir annað bundið eigið fé, stóð í 5,7 milljörðum króna lok síðasta fjárhagsárs. „Eigendur hafa gefið út yfirlýsingu um áframhaldandi fjárhagsstuðning út 30. júní 2026 ef þörf er á.“ Í umfjöllun um rekstrarhæfi í nýbirtum ársreikningi Berjaya Hotels Iceland segjast stjórnendur félagsins halda áfram að grípa til aðgerða til að milda uppsöfnuð áhrif eldvirkni í Grindavík og annara atriða sem hafa haft áhrif á ferðaþjónustuna á Íslandi, með það að markmiði að tryggja greiðslugetu og áframhaldandi rekstrarhæfi samstæðunnar. „Fjárhagsáætlun stjórnenda fyrir fjárhagsárið 2025-2026 gerir ráð fyrir verulegum viðsnúningi í rekstri. Þrátt fyrir bjartsýni stjórnenda, er hætta á rekstrarhæfi samstæðunnar ef áætlanir stjórnenda ganga ekki eftir.“ Stóðust ekki lánaskilmála Rekstrartekjur samstæðunnar jukust um 7,2% milli ára og námu rúmlega 17,7 milljörðum króna á síðasta fjárhagsári. EBITDA hagnaður félagsins jókst um 7,3% milli ára og nam rúmlega 4,3 milljörðum króna. EBIT-hagnaður var tæplega 1,3 milljarðar. „Rekstrarárið hófst með stöðugum rekstri í hótelstarfsemi félagsins. Áframhaldandi eldvirkni í Grindavík hafði þó neikvæð áhrif á komu ferðamanna til landsins. Þá höfðu háir vextir og viðvarandi verðbólga einnig íþyngjandi áhrif á rekstur félagsins á árinu,“ segir í skýrslu stjórnar. Eignir samstæðunnar voru bókfærðar á 45,1 milljarð króna í lok júní síðastliðins, samanborið við 46,9 milljarða ári áður. Eigið fé samstæðunnar var sem fyrr segir jákvætt um 149 milljónir króna í lok júní 2025. Handbært fé nam 530 milljónum og veltufjármunir að frádregnum skammtímaskuldum voru neikvæðir um 12,8 milljarða króna. Skammtímaskuldir námu 12,8 milljörðum króna, en þar af var tæplega 7,3 milljarða króna langtímaskuld við Arion banka sem skráð var sem skammtímaskuld. „Í lánasamningum samstæðunnar eru lánaskilmálar sem samstæðan stenst ekki í lok reikningsárs og í samræmi við IAS 1 hafa lánin verið skráð sem skammtímaskuld á fjárhagsárinu. Eftir uppgjörsdag fékk félagið undanþágu frá lánveitanda sínum, staðfest er að ekki verður gripið til aðgerða vegna brota á skilmálum lánsins né krafist tafarlausrar endurgreiðslu lánanna. Þó að þessi undanþága sé veitt eftir uppgjörsdag hefur hún ekki áhrif á flokkun lánanna í efnahagsreikningi þann 30. júní 2025. Hins vegar hafa lánin verið endurflokkað sem langtímaskuld á næsta reikningsári.“ Þá voru eignir móðurfélagsins færðar til bókar á 56 milljarða á sama tíma. Eiginfjárstaða móðurfélagsins var neikvæð um 1 milljarð króna í lok júní 2025. Lykiltölur / Berjaya Hotels Iceland (samstæða) 2024-2025 2023-2024 Rekstrartekjur 17.767 16.568 Rekstrargjöld -13.418 -12.514 EBITDA 4.349 4.053 EBIT 1.281 1.009 Hreinar fjármagnstekjur -2.319 -2.592 Afkoma -985 -1.636 Eignir 45.132 46.932 Eigið fé 149 -753 Ársverk 683 686 Á reikningsárinu 1.7.2024-30.6.2025 (1.7.2023-30.6.2024). Stærðir í m.kr. Malasíska félagið Berjaya Land Berhad, dótturfélag Berjaya Corporation, keypti íslenska hótelfélagið í tveimur lotum árin 2019-2021. Endanlegt kaupverð var í kringum 7 milljarðar króna en virði hótelkeðjunnar lækkaði töluvert vegna áhrifa Covid-faraldursins á reksturinn. Hótelfélagið rekur tvær innlendar hótelkeðjur: Berjaya Iceland Hotels (sex hótel) og Eddu hótel (tvö hótel). Auk þess hefur félagið í sínum rekstri fjögur hótel í Reykjavík sem rekin eru í sérleyfissamningi við Hilton Worldwide, en þau eru Hilton Reykjavík Noridca, Canopy Reykjavík, Reykjavík Konsúlat hótel og Iceland Parliament Hotel. Einnig rekur félagið Alda Hotel Reykjavík.