Viðskipti | mbl | 29.4.2026 | 16:16 Taka við rekstri tveggja sögufrægra hótela Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut. Ljósmynd/Íslandshótel Setja bókamerki Íslandshótel munu taka að sér rekstur tveggja hótela í Reykjavík frá og með 1. september næstkomandi. Annars vegar þar sem nú er Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut og hins vegar þar sem nú er Reykjavík Natura Hotel á Nauthólsvegi. Íslandshótel undirrituðu leigusamninga við Reiti fasteignafélag þann 10. apríl um rekstur hótelanna. Samningurinn nær til 17 ára. Rótgróin hótel Hótelin eru bæði rótgróin og sögufræg og hafa gegnt mikilvægu hlutverki í íslenskri ferðaþjónustu til fjölda ára. Á Hilton Reykjavík Nordica eru 251 herbergi og á Reykjavík Natura Hotel 220 herbergi. Reitir og Íslandshótel munu í samstarfi ráðast í endurbætur á hótelunum en þær munu meðal annars fela í sér endurnýjun stórs hluta hótelherbergja. Þá munu Íslandshótel sjá um veitingarekstur á báðum hótelum, en þar eru nú starfræktir veitingastaðirnir VOX Brasserie & Bar og Satt Restaurant. Reykjavík Natura Hotel á Nauthólsvegi. Ljósmynd/Íslandshótel 17 hótel með um 2.000 herbergjum „Það er stórt og spennandi skref fyrir Íslandshótel að taka við rekstri þessara sögufrægu hótela sem sett hafa mark sitt á íslenska ferðaþjónustu í áratugi,“ er haft eftir Ólafi D. Torfasyni, stofnanda og stjórnarformanni Íslandshótela, í tilkynningu. „Við hlökkum til að bjóða starfsfólkið velkomið í okkar hóp og vinna áfram að því að veita gestum hótelanna framúrskarandi þjónustu,“ er svo haft eftir Davíð Torfa Ólafssyni, forstjóra Íslandshótela. Íslandshótel reka 17 hótel með um 2.000 herbergjum víðs vegar um landið undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar hjá Reitum, Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Ólafur D. Torfason, stofnandi og stjórnarformaður Íslandshótela og Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela. Ljósmynd/Íslandshótel Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ómagabálkur Grágásar og hælisleitendur Sigurður Már Jónsson Heiðraðir fræðimenn og sjávarútvegurinn Fleira áhugavert Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Erum ansi nærri mörkunum“ Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Furstadæmin segja skilið við OPEC Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Furstadæmin segja skilið við OPEC Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Milljónir munu missa vinnuna Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri María nýr markaðsstjóri hjá Tengi „Erum ansi nærri mörkunum“ Furstadæmin segja skilið við OPEC Nefna nýjan sæstreng eftir Íslendingasögupersónu Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ómagabálkur Grágásar og hælisleitendur Sigurður Már Jónsson Heiðraðir fræðimenn og sjávarútvegurinn Fleira áhugavert Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 „Betur má ef duga skal“ „Hvað er í gangi? Hversu mikið meira þolum við?“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Erum ansi nærri mörkunum“ Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Furstadæmin segja skilið við OPEC Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Furstadæmin segja skilið við OPEC Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Milljónir munu missa vinnuna Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri María nýr markaðsstjóri hjá Tengi „Erum ansi nærri mörkunum“ Furstadæmin segja skilið við OPEC Nefna nýjan sæstreng eftir Íslendingasögupersónu