Íslandshótel, stærsta hótelkeðja landsins, tapaði 283 milljónum króna árið 2025, samanborið við 105 milljóna króna hagnað árið áður. Ársreikningur félagsins var birtur í dag. Neikvæð gengisáhrif höfðu áhrif á afkomu félagsins og námu 148 milljónum króna á árinu 2025 samanborið við jákvæð gengisáhrif upp á 301 milljón króna árið áður. EBITDA dregst saman um 6% Tekjur samstæðunnar drógust saman um 0,2% milli ára og námu 16,6 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) dróst saman um 5,9% og nam rúmlega 4,1 milljarði króna. „Rekstrarumhverfi ársins var krefjandi, meðal annars vegna hás vaxtastigs, verðbólgu og aukins kostnaðarþrýstings. Þá hafði óvissa í alþjóðlegu efnahagsumhverfi og breytingar í flugframboði áhrif á ferðaþjónustu,“ segir í afkomutilkynningu og er þar vísað til falls Play. „Þrátt fyrir það er mat stjórnar að eftirspurn eftir ferðum til Íslands verði áfram sterk til lengri tíma, enda nýtur landið sérstöðu á alþjóðlegum markaði.“ Bent er á að fjöldi ferðamanna til landsins hafi verið um 2,3 milljónir og stóð í stað milli ára. Félagið segir árstíðarsveiflur hafa aukist á ný sem hafði áhrif á reksturinn. Á árinu 2025 var ráðist í endurfjármögnun lána samstæðunnar með það að markmiði að bæta fjármögnunarkjör og samræma sjóðstreymi betur árstíðarsveiflum í rekstri. Íslandshótel segja að endurfjármögnunin muni styrkja fjárhagslega stöðu samstæðunnar og leggja traustari grunn að áframhaldandi uppbyggingu og rekstri til lengri tíma. Eignir Íslandshótela námu 65,2 milljörðum króna í árslok 2025, en þar af voru fasteignir sem metnar voru á 55 milljarða króna. Eigið fé var um 25,8 milljarðar. Ólafur D. Torfason, stofnandi Íslandshótela, er stærsti hluthafi félagsins í gegnum félagið ÓDT Ráðgjöf ehf. sem á 75,2% hlut í hótelfélaginu. Fjárfestingafélagið S38 slhf., sem er að mestu í eigu lífeyrissjóða í gegnum samlagshlutafélögin Kjölfestu og Eddu, er næst stærsti hluthafi Íslandshótela með 24% hlut.