Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Íslandshótel taka við rekstri Nordica og Natura

Read Full Article →

Íslandshótel hafa undirritað leigusamninga við Reiti fasteignafélag hf. um rekstur Hilton Reykjavík Nordica á Suðuralandsbraut og Reykjavík Natura Hotel á Nauthólsvegi frá og með 1. september 2026. Um er að ræða leigusamning til 17 ára. Íslandshótel taka við rekstri hótelanna af samkeppnisaðila sínum Berjaya Hotels Iceland, sem hét áður Icelandair Hotels. „Með samkomulagi hefur núverandi leigutaki fallið frá forleigurétti sínum og leigutími hans verið framlengdur til 31. ágúst 2026,“ segir í tilkynningu Reita til Kauphallarinnar. Eins og tilkynnt var um í apríl 2025 munu Reitir, í samstarfi við Íslandshótel, ráðast í endurbætur á hótelunum með það markmið að auka gæða og aðdráttarafl þeirra. Endurbæturnar munu meðal annars fela í sér endurnýjun á stórum hluta gistirýma sem eru samtals um 470 talsins. Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar (NOI) vegna leigusamninganna sé um 620 milljónir króna á fyrstu tveimur og hálfa ári leigutímans en um 720 milljónir króna eftir það, sem eru óbreytt áætlun frá því sem tilkynnt var um 10. apríl 2025. Reitir tilkynntu í apríl 2025 um að fasteignafélagið og Íslandshótel, stærsta hótelkeðja landsins, hefðu undirritað leigusamninga til 17 ára um fasteignirnar að Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsvegi 52 sem hýsa umrædd hótel. Berjaya Hotels Iceland nýtti í kjölfarið forleigurétt sinn. Sem fyrr segir hafa Reitir nú náð samkomulagi við Berjaya um að hótelfélagið falli frá forleigurétti sínum. Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut. © Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag) Íslandshótel munu jafnframt sjá um veitingarekstur á báðum hótelum, en þar eru nú starfræktir veitingastaðirnir VOX Brasserie & Bar og Satt Restaurant. „Það er stórt og spennandi skref fyrir Íslandshótel að taka við rekstri þessara sögufrægu hótela sem sett hafa mark sitt á íslenska ferðaþjónustu í áratugi,“ segir Ólafur D. Torfason , stofnandi og stjórnarformaður Íslandshótela. „Við hlökkum til að bjóða starfsfólkið velkomið í okkar hóp og vinna áfram að því að veita gestum hótelanna framúrskarandi þjónustu,“ segir Davíð Torfi Ólafsson , forstjóri Íslandshótela. Íslandshótel er stærsta hótelkeðja landsins og rekur 17 hótel með um 2.000 herbergjum víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Félagið á jafnframt stóran hluta þeirra fasteigna sem hýsa starfsemina. Með þessum leigusamningum við Reiti mun hótelum í rekstri félagsins fjölga í 19. Reykjavík Natura Hotel á Nauthólsvegi. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article